1 Af 6. Sagan Sem Breytti Lífi Mínu.
Að eignast barn er ekki jafn auðvelt fyrir alla. Ég hafði alltaf séð mig fyrir mér sem pabba og mig langaði ekkert meira í lífinu en að fá að verða pabbi. Þegar ég greindist ófrjósamur þá breyttist líf mitt og okkar mikið. Ég þurfti að kynnast sjálfum mér upp á nýtt. Ég gekk í gegnum mjög erfitt tímabil, sem einkenndist af mjög miklum kvíða, þunglyndi og félagsfælni meðal annars. Mér fannst ég vera algjörlega einn í heimi og hafa engan til að tala við sem skildi hvað ég var að ganga í gegnum. Ég gat ekki talað við neinn sem hafði reynslu af þessu fyrst um sinn og það var mjög erfitt að...