Episodes
Líkamsímynd barna er mikilvægur þáttur í lífi barns. Við gerum okkar allra besta að hjálpa börnum að þróa með sér jákvæða líkamsímynd en það er þó ekki alltaf auðvelt í samfélagi sem matar okkur á staðalímyndum og ranghugmyndum um líkama okkar. Ég fékk frábæra konu, hana Elvu Ágústsdóttur í viðtal til mín, en hún hefur skoðað líkamsímynd og sjálfsmynd barna náið, ásamt því að vera í stjórn samtakana um líkamsvirðingu. Í þættinum ræðum við mikilvægi jákvæðrar líkamsímyndar fyrir börn og...
Published 05/11/20
Anja stjúpdóttir mín er 13ára og nýbúin að kynnast heimi samfélagsmiðla. Hún fékk þessa frábæru hugmynd að ræða jákvæða líkamsímynd út frá sjónarmiðum ungmenna. 
Published 02/06/20
Published 02/06/20
Fyrsti þátturinn þar sem Ernuland Podcast er með viðmælanda, en það er hún Árný Guðjónsdóttir. Árný er frábær karakter með bein í nefinu og ég hef lært mikið af henni þegar kemur að líkamsvirðingu. Einnig er Árný tveggja barna móðir, admin með mér á facebook-síðunni Jákvæð líkamsímynd og að klára uppeldis og menntunarfræði.  Áhersluatriði : Nýtt ár, Des/Jan, öfgar, megrunarmenningin, matarsamviskubit, fyrir og eftir myndir, fræðsla, líkamsvirðing, átröskun, jákvæð líkamsímynd.
Published 12/29/19
Þessi þáttur er stútfullur af allskonar verkfærum fyrir ykkur í jákvæðri líkamsímynd. Verkfærin hjálpa ykkur að taka fyrstu skrefin, halda fókus og mæta neikvæðum skilaboðum bæði frá ykkur sjálfum og samfélaginu. 
Published 12/03/19
Í þessum þætti gef ég ykkur færi á að kynnast Ernu ofan í kjarna. Þátturinn er mjög raw og brynjan algjörlega felld niður. Ég vil gefa ykkur smá tilfinningu fyrir því hvað hefur mótað mig og hvernig mín vegferð hefur fært mig frá neikvæðri líkamsímynd yfir í jákvæða líkamsímynd.
Published 12/03/19