Þetta er tvískiptur þáttur um tvífara. Við fjöllum um undarlegar tilviljanir í lífi fólks sem líkist mjög mikið og þjóðsagnaverurnar doppelgängers og hvaða afleiðingar það getur haft í för með sér að sjá þessar verur.
Í gegnum tíðina hefur það verið þekkt að börnum hafi verið víxlað við fæðingu og þau alist upp hjá öðrum foreldrum. Þessi þáttur fjallar um nokkur slík tilfelli, hvert öðru áhugaverðara.