Rauða borðið Gunnar Smári Egilsson
-
- News
-
Róttæk samfélagsumræða.
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
-
Helgi-spjall: Harpa Njáls
Laugardagurinn 18. maí
Helgi-spjall: Harpa Njáls
Harpa Njáls félagsfræðingur er gestur Helgi-spjalls, segir okkur frá baráttu sinni fyrir að samfélagið og stjórnmálin horfist í augu við fátæktina en líka frá uppvexti sínum á Suðureyri við Súganda, áföllum sem riðu yfir, basli og erfiðri lífsbaráttu, þátttöku sinni verkalýðsbaráttu og annarri baráttu fyrir betra lífi lágstéttanna. -
Vikuskammtur - Föstudagurinn 17. maí
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Guðrún Þórsdóttir stjórnarkona í Geðhjálp, Svavar Halldórsson stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur, Vera Wonder Sölvadóttir kvikmyndagerðarkona og Magnús Scheving höfundur, leikari og framleiðandi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af baráttunni um Bessastaði, tröllum og tilfinningalegum gusum, grimmd gagnvart flóttakonum, bókabrennum og stríðum.
-
Breiðholt, dauðinn, karlmennska og fótbolti
Fimmtudagurinn 16. maí
Breiðholt, dauðinn, karlmennska og fótbolti
Helgi Gíslason, skólastjóri Fellaskóla, kemur að Rauða borðinu og segir okkur frá skólanum og hverfinu þar sem er hæst hlutfall innflytjenda og fólks sem ekki talar íslensku heima. Salvör Nordal umboðsmaður barna er heimspekingur sem fjallað hefur um heilbrigðiskerfið. Hún ræðir við okkur um um dánaraðstoð. Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar er leikrit um karlmennsku og fótbolta. Leikararnir Sveinn Ólafur Gunnarsson, Ólafur Ásgeirsson og Albert Halldórsson og söngvarinn Valdimar Guðmundsson taka þátt í þeirri sýningu og koma til okkar til að ræða hana, karlmennsku og fótbolta. -
Forseti, hommar, húsaleiga og Breiðholt
Miðvikudagurinn 15. maí:
Forseti, hommar, húsaleiga og Breiðholt
Við byrjum á umræðu um forsetakosningarnar. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Björn Þorláksson og Sigurjón Magnús Egilsson, gamalreyndir blaðamenn koma að Rauða borðinu og fjalla um kosningabaráttuna. Bjarni Snæbjörnsson leikari setti upp leikrit um eigin för sín út úr skápnum, Góðan daginn Faggi. Nú hefur hann skrifað bókina Mennsku um sama efni. hann segir okkur sína sögu. Í þinginu er frumvarp um breytingar á húsaleigulögum. Bjarni Þór Sigurðsson formaður húsnæðisnefndar VR og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna greina frumvarpið út frá hagsmunum leigienda og almennings, en frumvarpið er mest sniðið að hagsmunum leigusala. Kennararnir Maria Sastre og Marta Wieczorek búa í Breiðholti og eru þar menningarsendiherrar. Þær segja okkur frá hverfinu sínu og þeim breytingum sem það gengur í gegnum. -
Forseti fólks eða elítu, andmannúð, kennarar í vígahug, sjókvíar & fjölpóla heimur
Þriðjudagurinn 14. maí
Forseti fólks eða elítu, andmannúð, kennarar í vígahug, sjókvíar og fjölpóla heimur
Eru forsetakosningarnar átök milli elítunnar og fólksins? Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi svarar því. Íslensk stjórnvöld fluttu úr landi fórnarlömb mansals, sem þau höfðu hent á götuna fyrir tæpu ári. Drífa Snædal talskona Stígamóta reynir að ráða í hver sé ástæðan. Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins ræðir stöðu kennara. Fara þeir í verkföll í haust? Jón Örn Pálsson sjávarútvegsfræðingur telur að við eigum að byggja upp sjókvíaeldi en alls ekki eins og gert hefur verið. Og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor óttast kjarnorkustríð ef bandaríkin og Vesturveldin halda óbreyttri stefnu. -
Kaupmáttur, vextir, þingið, fjölmiðlar og Nató
Mánudagurinn 13. maí
Kaupmáttur, vextir, þingið, fjölmiðlar og Nató
Hagráð verkalýðsins kemur að Rauða borðinu: Róbert Farestveit hagfræðingur Alþýðusambandsins, Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur BHM og Stefán Ólafsson sérfræðingur Eflingar taka stöðuna á vaxta stefnu Seðlabankans og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og velta fyrir sér hvort forsendur kjarasamninga muni halda. Þórunn Sveinbjarnardóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir settust saman á þing fyrir 25 árum, árið 1999. Björn Þorláks fær þær í heimsókn í Þingið og líka tvo blaðamenn sem nýverið réðu sig í þjónustu þingflokka; Atla Þór Fanndal starfsmann Pírata og Sunnu Valgerðardóttir starfsmann Vg. Í lokin kemur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og ræðir varnar- og öryggisstefnu stjórnvalda út frá yfirlýsingum Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra.