9 episodes

Stöðutakan er vikulegur þáttur um viðskipti og efnahagsmál í umsjón Þórðar Gunnarssonar. Þátturinn er aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum og í mynd á uppkast.is.

Stöðutakan Stöðutakan á Uppkast

    • Business

Stöðutakan er vikulegur þáttur um viðskipti og efnahagsmál í umsjón Þórðar Gunnarssonar. Þátturinn er aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum og í mynd á uppkast.is.

    #8 - Segir lagaumhverfi veðmálamarkaðarins á Íslandi sé í mörgu ábótavant - Daði Laxdal Gautason

    #8 - Segir lagaumhverfi veðmálamarkaðarins á Íslandi sé í mörgu ábótavant - Daði Laxdal Gautason

    Daði Laxdal Gautason, aðstoðarframkvæmdastjóri GAN Ltd, segir að lagaumhverfi veðmálamarkaðarins á Íslandi sé í mörgu ábótavant. Mikil tækifæri eru fyrir íslensku íþróttahreyfinguna varðandi styrktarsamninga við veðmálafyrirtæki, einkum og sér í lagi knattspyrnufélög.
    Stöðutakan birtist í opinni dagskrá á uppkast.is og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

    • 23 min
    #7 - Segir nauðsynlegt að endurskipuleggja stuðningslán - Rannveig Grétarsdóttir

    #7 - Segir nauðsynlegt að endurskipuleggja stuðningslán - Rannveig Grétarsdóttir

    Endurgreiðslutími stuðningslána til fyrirtækja sem veitt voru í faraldrinum er of skammur, segir Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar. Endurgreiðslur stuðningslána eiga að hefjast á þessu ári og ljúka á 18 mánuðum. Rannveig segir að þrátt fyrir að ferðamannastraumur til landsins hafi tekið við sér á ný, þurfi fyrirtæki í geiranum meiri tíma til að ná fyrri styrk.

    Stöðutakan birtist í opinni dagskrá á uppkast.is og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

    • 28 min
    #6 - Segir Play frábrugðið fyrirrennurum - Almar Örn Hilmarsson

    #6 - Segir Play frábrugðið fyrirrennurum - Almar Örn Hilmarsson

    Almar Örn Hilmarsson, fyrrverandi forstjóri flugfélaganna Iceland Express og síðar Sterling, segir að PLAY sé ólíkt Iceland Express og WOW Air að því leytinu til að eignarhaldið sé miklu dreifðara sem geri það líklegra en ella að ákvörðunartaka verði vönduð. Ásamt spjalli um íslenska fluggeirann ræddi Almar um viðskiptatækifæri íslenskra fyrirtækja og einstaklinga í Austur-Evrópu og viðskiptamenninguna á staðnum.

    Stöðutakan birtist í opinni dagskrá á uppkast.is og öllum helstu hlaðvarpsveitum.

    • 29 min
    #5 - Skúli Hrafn Harðarson

    #5 - Skúli Hrafn Harðarson

    Skúli Hrafn Harðarson hjá eignastýringu Kviku banka bendir á að hlutabréf ættu að vera hluti af vel dreifðu eignasafni til að verja sparnað gegn verðbólgu. Margvísleg áföll hafa dunið yfir íslenskan hlutabréfamarkað síðastliðin 15 ár, en samfara vexti markaðarins og aukins áhuga erlendra fjárfesta er ástæða til bjartsýni.

    Stöðutakan birtist í opinni dagskrá á uppkast.is og öllum helstu hlaðvarpsveitum.

    • 26 min
    #4 - Arnar Sigurðsson

    #4 - Arnar Sigurðsson

    Arnar Sigurðsson, forsvarsmaður netverslunarinnar Sante, varð fyrir þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að ríkisstofnunin ÁTVR höfðaði einkamál gegn fyrirtæki hans og honum persónulegu. Arnar og Sante höfðu fullan sigur í málinu. Arnar bendir á að engin stjórn sé yfir ÁTVR og því hafi stjórnendur þess ansi lausan tauminn við rekstrarákvarðanir. Til dæmis var stjórnunarkostnaður, sem telur ekki launa- og húsnæðiskostnað um 380 milljónir í síðasta birta uppgjöri. Arnar kallar eftir því að Ríkisendurskoðun taki rekstur ÁTVR til skoðunar.

    Stöðutakan birtist í opinni dagskrá á uppkast.is og öllum helstu hlaðvarpsveitum.

    • 34 min
    #3 - Óli Björn Kárason

    #3 - Óli Björn Kárason

    Í þættinum ræðir Þórður Gunnarsson við Óla Björn Kárason, þingmann Sjálfstæðisflokksins, um söluna á 22,5% eignarhlut Ríkissjóðs í Íslandsbanka. Stöðutakan birtist í opinni dagskrá á uppkast.is og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

    • 33 min

Top Podcasts In Business

Money Rehab with Nicole Lapin
Money News Network
REAL AF with Andy Frisella
Andy Frisella #100to0
The Ramsey Show
Ramsey Network
The Money Mondays
Dan Fleyshman
Young and Profiting with Hala Taha
Hala Taha | YAP Media Network
Habits and Hustle
Jen Cohen and Habit Nest