Episodes
Published 03/26/22
Þórunn og Alexsandra eru bara tvær (okei tvær og hálf með Jökli) í þætti dagsins. Þær ræða aðeins um upplifun Lexunar að vera með ungabarn í annað sinn, svara nokkrum spurningum frá hlustendum og fara yfir það sem hefur verið að hrjá Tótuna seinustu mánuði.  ÞOKAN er í boði Kiehl's, Nespresso og Bestseller.
Published 03/26/22
Þórunn & Alexsandra fá til sín vinkonu Þórunnar hana Svandísi Sigurðardóttir. Ræða þær aðeins um endómetríósu sem þær Þórunn eru báðar með, ófrjósemi og ættleiðingarferlið sem Svandís og maður hennar fóru í gegnum.  ÞOKAN er í boði Kiehl's, Nespresso, Bestseller og Dr. Teal's.
Published 03/17/22
Þórunn & Alexsandra fara aðeins yfir atburði seinustu vikna í þætti dagsins. Þær tala um sína upplifun og reynslu á að eiga börn með vara- og tunguhöft sem þurfti að klippa á, helstu einkenni þess og hvað breyttist eftir að var klippt á höftin. Nauðsynlegt er að bæta þjónustu þegar kemur að þessum þáttum hérlendis og grípa sem fyrst inn í til að koma í veg fyrir vandamál tengd brjóstagjöf, fæðuinntöku og tali barna. ÞOKAN er í boði Kiehl's, Bestseller og Nespresso. 
Published 03/08/22
Þórunn & Alexsandra fá til sín góðan gest, hana Steinunni Jónsdóttur úr Reykjavíkurdætrum og Amabadama. Þær ræða um móðurhlutverkið, hversu mikilvægt það er að undirbúa börnin fyrir það að eignast nýtt systkini og tónlistarferilinn hennar Steinunnar ásamt þátttöku hennar með Reykjavíkurdætrum í Söngvakeppninni. ÞOKAN er í boði Kiehl's, Nespresso, Bestseller og Dr. Teal's.
Published 03/01/22
Þórunn & Alexsandra ræða aðeins um skipulag í þætti vikunnar og hvernig þeim finnst best að halda heimilinu skipulögðu og hreinu.  ÞOKAN er í boði Kiehl's, Nespresso og Bestseller.
Published 02/22/22
Þórunn & Alexsandra fá til sín hana Þórhildi sem heldur úti Instagram reikningnum Sundur og Saman. Þar deilir hún sinni reynslu og ráðum sem tengjast því að bæta sambönd sem byggir á jafningjagrundvelli. Þær ræða sambönd eftir barneignir, vinkonusambönd, opin sambönd og hvernig er hægt að rækta þau og bæta.  Við lentum í smá vandræðum með hljóðið í þessum þætti svo við biðjumst afsökunar á því. ÞOKAN er í boði Kiehl's, Nepsresso og Bestseller.
Published 02/10/22
Þórunn & Alexsandra eru mættar aftur eftir nokkrar vikur af sóttkví og einangrun. Í þætti dagsins halda þær áfram þar sem frá var horfið eftir fæðingarsöguna hennar Lexu og ræða aðeins fyrstu dagana og batann eftir bráðakeisara. ÞOKAN er í boði Dr. Teal's, Bestseller og Nespresso.
Published 02/01/22
Þórunn & Alexsandra eru mættar aftur eftir smá pásu eftir að Þórunn og fjölskylda enduðu seinasta ár í einangrun. Þær fara yfir allt sem hefur gengið á seinustu vikur!  ÞOKAN er í boði Bestseller og Nespresso. 
Published 01/10/22
*TW: Jólasveinatal og mjög dramatísk keisarafæðing* Lexan er mætt aftur eftir stutt fæðingarorlof og segir okkur fæðingarsöguna sína í þessum þætti Þokunnar sem er örlítið dramatísk, bara örlítið. ÞOKAN er í boði Bestseller og Fruitfunk. 
Published 12/14/21
Þórunn fær til sín hana Gyðu Dröfn í þennan þátt af Þokunni á meðan Lexa er í barneignaleyfi. Þær vinkonurnar ræða sitt vinasamband og hvernig það hefur gengið að vinna saman seinustu ár.  ÞOKAN er í boði Nespresso, Bestseller og Dr. Teal's.
Published 12/01/21
Þórunn & Alexsandra eru mættar aftur með léttan spjallþátt um allt og ekkert svona í tilefni þess að Lexan er komin heila þrjá daga framyfir, hverjum hefði grunað það?  Það voru smá tæknilegir örðugleikar svo það gætu heyrst smá skruðningar fyrstu mínúturnar en svo lagast það. ÞOKAN er í boði Nespresso, Bestseller og Dr. Teal's.
Published 11/16/21
Þórunn & Alexsandra ræða óumbeðin ráð í þessum þætti af Þokunni. Það er ótrúlegt hvað fólk leyfir sér oft að segja við óléttar konur og nýbakaðar mæður og ræða þær nokkra hluti sem þær hafa heyrt á seinustu árum. ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso og Fruitfunk.
Published 11/09/21
Þórunn & Alexsandra taka einn góðan spjallþátt um allt og ekkert. Þær ræða lok meðgöngunnar, hvað hefur verið að gerast seinustu vikur hjá þeim og hvað er framundan. ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso og Fruitfunk. 
Published 11/04/21
*TW: Í þættinum er fjallað um barn sem lætur lífið í móðurkviði.* Þórunn & Alexsandra fá til sín hana Önnu Mörtu, líkamsræktar- og matarþjálfara. Anna Marta segir okkur söguna af henni Sól, sem fæddist andvana árið 2008. Anna Marta greinist eftir fæðinguna með gallstasa og í þættinum ræða þær aðdraganda, fæðinguna og hvernig það hefur verið að lifa með sorginni ásamt því að vekja athygli á gallstasa.  ÞOKAN er í boði Nespresso, Bestseller og Dr. Teal's. 
Published 10/26/21
Þórunn & Alexsandra ræða fyrirbærið  hreiðurgerð í þessum þætti af Þokunni. Lexan er djúpt sokkin í hreiðurgerðina og er að skúra baðherbergisgólfið á miðnætti á sunnudagskvöldum og að laga til í geymslunni sinni, er það ekki alveg eðlilegt? Þær ræða einnig pressuna sem margar mæður finna fyrir í gegnum samfélagsmiðla og hvernig mæður undirbúa sig á mismunandi hátt fyrir móðurhlutverkið.  ÞOKAN er í boði Besteller, Nespresso og Fruitfunk. 
Published 10/19/21
Þórunn & Alexsandra taka fyrir nokkrar játningar sem þær fengu sendar inn frá hlustendum og ræða í þessum þætti af Þokunni. Viðurkennum bara að við erum allar að gera okkar besta 99% af tímanum en stundum þarf maður bara að redda sér eða við gerum eitthvað sem við erum ekki endilega stoltar af. ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso og Dr. Teal's.
Published 10/14/21
Þórunn & Alexsandra ræða meðgönguna hennar Lexu í þessum þætti af Þokunni. Þær fjalla um muninn á fyrstu meðgöngunni hennar og þessari, alls konar tilfinningar sem hún er búin að upplifa á meðgöngunni, hvernig hún er að undirbúa sig fyrir fæðinguna ásamt fleiru. ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso og Fruitfunk. 
Published 10/05/21
Þórunn & Alexsandra fara yfir hlut í þætti dagsins sem flestar konur upplifa en enginn talar um. Þær ræða tíðahringinn, sniðuga leið til að fylgjast með honum og ýmsa hluti til að gera lífið aðeins bærilegra þessa nokkru daga í mánuði. ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso og Dr. Teal's.
Published 09/29/21
Þórunn & Alexsandra ræða bílstólaöryggi og fleiri öryggisþætti tengda svefni og börnum í þessum þætti af Þokunni. Mjög mikilvægt er að ræða hluti eins og bílstólaöryggi og hvernig á að festa börnin rétt í stólana til að tryggja að allir séu sem öruggastir og að gera hlutina rétt. ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso & Fruitfunk. 
Published 09/21/21
Þórunn & Alexsandra svara nokkrum spurningum frá hlustendum í þessum Q&A þætti af Þokunni.  ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso og Johnson's Baby.
Published 09/14/21
Þórunn & Alexsandra fá til sín hana Anítu Rut en hún er ein af þremur konum sem halda úti Fortuna Invest reikningnum á Instagram. Fortuna Invest er vettvangur sem veitir aðgengilega fræðslu um fjárfestingar og er markmið þeirra að auka fjölbreytileikann í þátttöku á fjármálamarkaði. Þær ræða fjárfestingar, hvernig er best að byrja ásamt fleiri spennandi hlutum.  ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso og Fruitfunk. 
Published 09/07/21
Þórunn & Alexsandra tala aðeins meira um prjón í þessum þætti af Þokunni þar sem hlustendur þáttarins hafa óskað eftir því síðan seinasti prjónaþáttur kom út. Þær ræða nýkláruð verkefni, verkefni sem eru á prjónunum ásamt óskalistanum sínum.  ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso og Fruitfunk. 
Published 08/24/21
Þórunn & Alexsandra ræða bumbuhópa á Facebook í þætti dagsins en þeir eru afar umdeildir og mikið í umræðunni áhrif þeirra á andlegu heilsu verðandi mæðra. Þær ræða jákvæðu hliðar bumbuhópa ásamt neikvæðu hliðunum og hversu mikilvægt það er að fara inn í þá með gagnrýna hugsun og sleppa samanburðinum.  ÞOKAN er í boði Nespresso, Bestseller og Johnson's Baby.
Published 08/17/21
Í þessum þætti af Örþokunni fara Þórunn & Alexsandra yfir nokkur námskeið sem verðandi foreldrar geta sótt til að undirbúa sig fyrir komandi hlutverk.  ÖRÞOKAN er í boði Johnson's Baby. 
Published 08/15/21