#126 - Einar Lövdahl & Heiðdís Inga
Listen now
Description
Rithöfundurinn og tónlistarmaðurinn Einar Lövdahl Gunnlaugsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi umhverfis fræðingnum Heiðdísi Ingu Hilmarsdóttur. Einari er ýmislegt til lista lagt en hefur hann gefið út tvær plötur, samið texta fyrir marga helstu tónlistarmenn landsins og er hann þessa stundina á loka metrunum að skrifa sína fyrstu skáldsögu sem kemur út í mars. Heiðdís er menntuð umhverfisfræðingur og vinnur hún þessa stundina hjá krónunni á umhverfissviði. Einar og Heiðdís kynntust á jólaballi MR þar sem Einar gaf undanþágu af strangri miðasölu reglu fyrir hana þar sem hún átti afmæli, þau eyddu dágóðum tíma saman á ballinu og hlutirnir gerðust hratt í kjölfarið og hafa þau í raun verið saman allar götur síðan þá og eiga í dag saman tvær dætur. Í þættinum ræddum við meðal annars um tónlistina, textasmíðina og rithöfundamennskuna, hvar áhuginn kviknaði á umhverfisfræðinni, rómantíkina, húmorinn, fjölskyldulífið og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð meðal annars frá óheppilegri uppákomu þeirra í leiguíbúð Einars í Svíþjóð. Þátturinn er í boði: Góu - http://www.goa.is/ RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/ Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejar
More Episodes
Published 11/30/23
Leikkonan Hildur Vala Baldursdóttir mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi ráðgjafanum Kjartani Ottósyni. Hildur Vala hefur verið fastráðin við Þjóðleikhúsið síðan hún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2019 og hefur leikið í hinum ýmsu sýningum...
Published 11/16/23
Fótboltafólkið og blikarnir Katrín Ásbjörnsdóttir og Damir Muminovic mættu til mín í virkilega skemmtilegt spjall nú á dögunum. Katrín er búin að spila fótbolta nánast alla sína tíð og hefur leikið fyrir marga stærstu klúbba landsins en má þar nefna meðal annars KR, Þór/KA, Stjörnuna og nú...
Published 11/02/23