Viðtal: Guðný Helga forstjóri VÍS
Listen now
Description
,,Hafa meira gaman og minna leiðinlegt!" Í þessum fjórða þætti fáum við Guðnýju Helgu Herbertsdóttur, forstjóra VÍS í mjög skemmtilegt spjall. Þetta er fyrsta opinbera viðtalið sem hún fer í eftir að hafa tekið við starfi forstjóra í ársbyrjun. Við förum yfir tækifærin í tryggingageiranum, tæknibreytingar sem hafa átt sér stað, atriði sem einkenna góðan stjórnanda og vel valin fjármálaráð frá henni. Þátturinn er í boði: Íslandsbanki - þægileg leið til að eiga viðskipti með hlutabréf og sjóði í appi Íslandsbanka. ⁠Te&kaffi ⁠- við fáum okkar allra bestu hugmyndir yfir góðum kaffibolla á þar, þægilegt umhverfi til að taka gott vinnusession. Keldan - sú síða sem við notum mest til að fylgjast með markaðinum og viðskiptafréttum. Frjálsi lífeyrissjóðurinn - möguleiki á að ráðstafa stærsta hluta skyldusparnaðar í séreign sem er erfanleg. Félag lykilmanna - greiðir 0,05% af launum þínum mánaðarlega og færð aðgang að sjúkrasjóði. Meira af Fortuna Invest á Instagram, Linkedin og bókin okkar.
More Episodes
Í þessum þætti fáum við Hrefnu Ösp Sigfinnsdóttur til okkar í spjall. Hún er framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, hún tók við því starfi árið 2021 en hún starfaði áður hjá Landsbankanum frá árinu 2010 þar sem hún gegndi stöðu framkvæmdastjóra eignastýringar og miðlunar. Hún er einn stofnaðila...
Published 11/23/23
Í þessum þætti fáum við Jón Guðna Ómarsson sem tók nýlega við sem bankastjóri Íslandsbanka og fékk ekki langan umhugsunartíma þegar honum var boðið að taka við starfinu. Jón Guðni, eða Nonni eins og hann er stundum kallaður, er menntaður fjármálaverkfræðingur frá Georgia Institute of Technology....
Published 11/17/23
Published 11/17/23