Description
Í þessum þætti fáum við Kjartan Ólafsson stjórnarmann í Arnarlaxi og Björn Hembre forstjóra í viðtal. Félagið er skráð í norsku kauphöllina og hefur gefið út að það hyggist skrá sig á First North markaðinn hér heima.
Við ræðum við Kjartan um stofnun og rekstur Arnarlax hingað til, áskoranirnar og hvað sé framundan. Við spyrjum síðan Björn út í það hvernig það er fyrir Norðmann að flytjast til Íslands, og ekki bara til Íslands heldur á Bíldudal. Við ræðum áhugaverðan starfsferil og hvernig hann datt inn í það að vinna fyrir íslenskt laxeldisfyrirtæki.
Þátturinn er í boði:
Joe & the Juice - Tilboð alla miðvikudaga af djús og samloku!
Nettó - Með Nettó appinu færð þú 2% af öllum kaupum í formi inneignar sem síðan er hægt að nota til þess að versla.
World Class - Allir korthafar fá afslátt í spa og dekurmeðferðir.
Í þessum þætti fáum við Hrefnu Ösp Sigfinnsdóttur til okkar í spjall. Hún er framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, hún tók við því starfi árið 2021 en hún starfaði áður hjá Landsbankanum frá árinu 2010 þar sem hún gegndi stöðu framkvæmdastjóra eignastýringar og miðlunar.
Hún er einn stofnaðila...
Published 11/23/23
Í þessum þætti fáum við Jón Guðna Ómarsson sem tók nýlega við sem bankastjóri Íslandsbanka og fékk ekki langan umhugsunartíma þegar honum var boðið að taka við starfinu. Jón Guðni, eða Nonni eins og hann er stundum kallaður, er menntaður fjármálaverkfræðingur frá Georgia Institute of Technology....
Published 11/17/23