Viðtal: Sigríður Margrét Oddsdóttir
Listen now
Description
Sigríður Margrét, eða Sigga Magga eins og hún er yfirleitt kölluð, hefur starfað sem framkvæmdastjóri og forstjóri íslenskra fyrirtækja í tæp tuttugu ár, meðal annars hjá upplýsingafyrirtækinu Já og nú síðast starfaði hún sem forstjóri Lyfju. Hún hefur einnig setið í mörgum stjórnum meðal annars stjórn Samtaka Atvinnulífsins, Viðskiptaráðs Íslands, Já og Bláa lónsins svo fátt eitt sé nefnt. Sigga Magga tók við sem framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins í byrjun september, en ráðning hennar er söguleg þar sem hún verður fyrsta konan sem mun gegna þeirri stöðu. Hún hefur sýnt það vel í verki að hún skorast ekki undan áskorunum en framundan bíður hennar krefjandi verkefni að semja um kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Við áttum virkilega áhugavert og skemmtilegt spjall við Sigríði þar sem við ræðum meðal annars komandi kjaraviðræður, efnahagsumhverfið, húsnæðismarkaðinn, lyfjabransann og starfsferilinn. Þátturinn er í boði: ⁠⁠⁠⁠Joe & the Juice⁠⁠⁠⁠ - Tilboð alla miðvikudaga af djús og samloku! ⁠⁠⁠⁠Nettó⁠⁠⁠⁠ - Með Nettó appinu færð þú 2% af öllum kaupum í formi inneignar sem síðan er hægt að nota til þess að versla. ⁠⁠⁠⁠World Class⁠⁠⁠⁠ - Allir korthafar fá afslátt í spa og dekurmeðferðir. ⁠Duck and Rose⁠ - Fiskur dagsins í hádeginu alla virka daga á 2.990 kr. og spennandi nýr matseðill fór í gang 10.10.23. ⁠FLM⁠ - Greiðir 0,05% af launum þínum mánaðarlega og færð aðgang að sjúkrasjóði. ⁠Swapp Agency⁠ - Einfaldar utanumhald starfs­fólks í fjar­vinnu í öðrum lönd­um.
More Episodes
Í þessum þætti fáum við Hrefnu Ösp Sigfinnsdóttur til okkar í spjall. Hún er framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, hún tók við því starfi árið 2021 en hún starfaði áður hjá Landsbankanum frá árinu 2010 þar sem hún gegndi stöðu framkvæmdastjóra eignastýringar og miðlunar. Hún er einn stofnaðila...
Published 11/23/23
Í þessum þætti fáum við Jón Guðna Ómarsson sem tók nýlega við sem bankastjóri Íslandsbanka og fékk ekki langan umhugsunartíma þegar honum var boðið að taka við starfinu. Jón Guðni, eða Nonni eins og hann er stundum kallaður, er menntaður fjármálaverkfræðingur frá Georgia Institute of Technology....
Published 11/17/23
Published 11/17/23