Episodes
Gestur þáttarins heitir Dominique og hún ætlar að segja okkur frá sinni fyrstu fæðingu. Við förum í gegnum allt ferlið og ræðum ítarlega hennar upplifun á fæðingunni og hvað hún og maðurinn hennar gengu í gegnum.  Þetta er vægast sagt átakanleg saga en sem betur fer er drengurinn þeirra heilbrigður. Hún lagði upp með það að fæða í Björkinni og hóf þann undirbúning en meðgöngusykursýki setti risa stórt strik í reikninginn og hafði svakaleg áhrif á það hvernig fæðingin þróaðist. Mögnuð saga sem...
Published 10/21/20
Published 10/21/20
Gestur þáttarins heitir Birta Ísólfsdóttir en hún segir okkur magnaðar sögur frá báðum fæðingunum sínum. Þegar hún varð ólétt var hún óviss um hvernig líkaminn bregst við öllu tengdu meðgöngunni og fæðingunni og hvað það er sem gerist nákvæmlega í fæðingu. Eftir að hafa kynnt sér allt mjög vel tók hún ákvörðun um að fæða í Björkinni sem gekk ótrúlega vel að hennar sögn. Seinni fæðingin hennar var svo heimafæðing og gekk líka mjög vel. Við ræddum einmitt bæði ferlið í Björkinni og svo hvernig...
Published 07/13/20
Hann heitir Andri og er tveggja barna faðir. Dóttir hans er 10 ára og strákurinn 5 ára. Andri segir okkur frá því á skemmtilegan hátt hvernig hann upplifði fæðingar barnanna sinna og  sagðist hafa fundið fyrir mikilli berskjöldun og vitnar þar í tilfinningahlutann í fæðingunni. Hann segir magnað að vera í þessu hlutverki en auðvitað misjafnt eftir því hvort var talað um fyrri fæðinguna eða seinni. Í fyrri fæðingunni var hann ungur, vissi lítið út í hvað hann væri að fara og segir okkur svo...
Published 03/24/20
Í þessum þætti ræddi ég við Maríu Rut. Hún var 18 ára þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn og var gengin rúmar 17 vikur þegar það kom í ljós að hún værir ólétt. Meðgangan gekk vel og hún tókst á við þetta hlutverk með mögnuðum hætti. Til að mynda voru allmargir mættir inná fæðingarstofuna stuttu eftir að litli strákurinn hennar fæddist, eitthvað sem myndi ekki beint viðgangast í dag. Hún og konan hennar, Ingileif, eignuðust svo strák sumarið 2019 og María fer yfir það hvernig hún sem...
Published 03/03/20
Vá, þessi þáttur. Eydís er svo skemmtileg og segir svo skemmtilega frá öllum þessum fæðingum. Hún er sem sagt búin að eiga sex börn og á líka þrjú stjúpbörn. Við ræddum um allar fæðingarnar sex, hvernig hennar upplifun var af þeim, hversu langar þær voru og svo auðvitað hversu ólíkar. Hún talar um þetta allt saman á mjög opinn og skemmtilegan hátt, enda er ekki annað hægt þegar þetta umræðuefni er annarsvegar. Svo ræddum við auðvitað um eitt allra mesta tabúið og það er kúkurinn góði sem...
Published 01/27/20
Hann heitir Simmi og er tveggja barna faðir. Hann segir okkur frá fæðingum þeirra beggja en þau eru bæði fyrirburar. Í fyrra skiptið kom strákur og var á vökudeildinni í dágóðan tíma og í seinna skiptið kom stelpa sem fór í hjartaðaðgerð til Svíþjóðar. Þetta er magnaður þáttur þar sem Simmi segir okkur frá öllu ferlinu, þeim tilfinningum sem koma upp og óvissunni sem fylgir þessu. Ég hefði getað farið að gráta alveg nokkrum sinnum en náði að halda kúlinu. Það er ótrúlegt að hlusta á svona...
Published 12/12/19
Eins og nafnið gefur til kynna þá heitir hún Anna og er ljósmóðir, þekkt sem Anna ljósa. Hún býr yfir margra, margra ára reynslu af því að vinna sem ljósmóðir og er alveg ótrúlega fær í sínu starfi. Við náðum mjög skemmtilegu og fræðandi spjalli um hin ýmsu mál tengd fæðingum. Í fyrra gaf Anna út bókina "Fyrstu mánuðirnir" en bókin er sannkölluð gullkista fyrir alla þá sem hafa áhuga og vilja vita meira. Fáanleg í betri bókabúðum.  Þátturinn er í boði DIMM - https://dimm.is/
Published 10/25/19