Episodes
Umræðuefni þáttarins er næring á fjöllum. Viðmælendur eru Anna Sigríður Ólafsdóttir, Auður Elva Kjartansdóttir og John Snorri Sigurjónsson. Öll hafa þau mikla reynslu af næringu og tengingu næringar og árangurs á fjöllum. Í þættinum er farið máltíðir, skipulagningu og samsetningu máltíða, orkuþörk, vökvastjórnun ofl.
Published 10/15/18
Published 10/15/18
Gestur þáttarins er Jóhann Kári Ívarsson skálavörður í einum afskekktasta skála ferðafélagsins, Hrafntinnuskeri sem er í um 1.100m hæð. Jóhann hefur starfað sem skálavörður síðan 2012 þar af lengstum í Hrafntinnuskeri. Í viðtalinu förum við yfir lífið á hálendi Íslands með þeim ævintýrum og áskorunum sem því fylgir og þróun mála í Hrafntinnuskeri, til dæmis segir Jóhann frá því hvernig hann gekk reglulega um 22 kílómetra leið til að komast í sturtu. Jóhann er einnig einn af umsjónarmönnum...
Published 08/21/18
Dóri er einn af þúsundþjalasmiðum Ferðafélags Íslands. Hann segir hér m.a. söguna um hvernig hann var hætt kominn þegar hann féll útbyrðis á sjó um hávetur og hvernig reiðhjólakaup á netinu opnuðu leið fyrir hann í vitavörslu í Hornbjargsvita.
Published 07/30/18
Það finna allir eitthvað fyrir sig í ferðaáætlun F.Í. Úrval ferða er gífurlega mikið, allt frá léttum ferðum yfir í mjög krefjandi ferðir auk talsverðra nýjunga. Má þar meðal nefna fjallaskíðaferðir sem hafa verið kærkomin og vinsæl viðbót við úrval ferða F.Í.
Published 07/12/18
Það finna allir eitthvað fyrir sig í ferðaáætlun FÍ. Úrval ferða er gífurlega mikið, allt frá léttum ferðum yfir í mjög krefjandi ferðir auk talsverðra nýjunga. Má þar meðal nefna fjallaskíðaferðir sem hafa verið kærkomin og vinsæl viðbót við úrval ferða FÍ
Published 07/12/18
Gestur þáttarins að þessu sinni er fararstjórinn og sálfræðingurinn Sigríður Lóa. Hún hvetur okkur að njóta ferðlagsins og gleyma ekki að gefa okkur tíma til að njóta augnabliksins. Sigríður Lóa minnir okkur einnig á mikilvægi hreyfingar í baráttunni gegn algengra lýðheilsusjúkdóma á borð við þunglyndi og kvíða.
Published 06/28/18
Gestur þáttarins í dag er Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Ferðafélagið er áhugamannafélag með 8.000 félaga, með öfluga ferðáætlun árlega og rekur skála víðsvegar um hálendi Íslands.
Published 06/14/18
Gestur þáttarins í dag er Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Ferðafélagið er áhugamannafélag með 8.000 félaga, með öfluga ferðáætlun árlega og rekur skála víðsvegar um hálendi Íslands.
Published 06/14/18
Helgi Jóhannesson og Tómas Guðbjartsson eru miklir áhugamenn um fjallaskíðamennsku og settust niður með okkur og fræddu um þessa frábæru útivist sem fjallaskíðamennskan er.
Published 05/11/18
Gestur okkar í dag er Hjalti Björnsson. Hann fer hér yfir þau mikilvægu grunnatriði sem fólk þarf að hafa í huga við útivist, hvað varðar eigið öryggi og annara og einnig hvernig er best að bera sig að við að koma sér af stað í göngu- og fjallamennsku.
Published 04/29/18
Hér er rætt við Döllu og Matta, umsjónarmenn Ferðafélags barnanna. Það sem gerir ferðir með ferðafélagi barnanna sérstakar eru að þær eru farnar á forsendum barnanna og sniðnar að þörfum þeirra.
Published 04/15/18
John Snorri Sigurjónsson deilir hér með okkur reynslu sinni á K2 ásamt því gefa okkur innsýn inn í hugarheim heimsklassa háfjallamanns.
Published 03/22/18