EKKERT RUSL - Lena er orðin smá öfundsjúk út í kaup annarra kvenna. Ræðum það og dýfum okkur í viskubrunninn Magnús Jónsson, fyrrum veðurstofustjóra sem er einnig pabbi Lenu.
Listen now
Description
Nú þegar jólin nálgast þá örlar á öfund hjá Lenu Magnúsdóttur, þáttastjórnanda hlaðvarpsins Ekkert rusl, því hún upplifir að konur í kringum hana komi í hamingjukasti úr verslunarferðum með nýja skó, skart og föt. Hún er búin að hemja sig allverulega árið 2022 og kaupa ekkert nýtt nema samfellu sem hana bráðvantaði þegar hún var á leið í brúðkaup og áttaði sig á því að kjóllinn var hálfgagnsær og gamla samfellan hennar spratt af henni. Lena er mannleg og spennt fyrir því að kaupa sér eitthvað nýtt og fallegt á nýju ári. Hún talar um þetta í nýjasta þættinum og segir Margréti Stefánsdóttur, hinum þáttastjórnandanum að hún hafi oft séð föt með merkimiðanum á fatamörkuðum því fólk kaupi kannski flík í einhverju kaupæði sem kemur kannski ekki nógu vel út yfir brjóstin o.sfrv. Þær ræða í því samhengi föt og brjóst. Magnús Jónsson, fyrrverandi veðurstofustjóri og pabbi Lenu, er viðmælandi þáttarins en þegar hann var að læra veðurfræði þá var talið að við værum að fara inn í ísöld og aukin koltvísýringur í andrúmsloftinu væri í því samhengi til góðs og myndi seinka því ferli eða koma í veg fyrir það. Raunin varð vissulega önnur – ísöld var fjarri lagi og nú eru langflestir veðurfræðingar sammála um það að jörðin sé að hitna og það um of – og alltof hratt.
More Episodes
Nýr heimur opnaðist þeim Lenu og Margréti þegar þær ræddu við Birgittu sem er einn af fjórum stofnendum frumkvöðlafyrirtækisins Sea Growth. Fyrirtækið hlaut Gulleggið 2024 en hugmyndin gengur út á það að framleiða fiskhrávörur úr fiskfrumum svokallaðan vistfisk. Ferlið er þannig að frumusýni er...
Published 05/23/24
Published 05/23/24
„Við verðum amk næstu tvö árin með öfug orkuskipti sem þýðir að við erum með neikvæða þróun í grænu orkunni sem við státum okkur af. Það er skortur á raforku og því þurfa fyrirtæki í stóriðju að fara í olíu aftur, losun eykst og loftslagsbókhaldið okkar hefur farið niður,“ segir Guðlaugur Þór...
Published 04/24/24