#8 - Steini Hallgríms fór með titilinn á þjóðhátíð
Listen now
Description
Gestur vikunnar í Seinni níu er enginn annar en Eyjapeyjinn Þorsteinn Hallgrímsson. Steini varð Norðurlandameistari árið 1992 og svo Íslandsmeistari árið 1993. Vinnuslys gerði svo út um atvinnumannaferil og tilraunir með hestasterasprautur dugðu ekki til. Þorsteinn er íslenskum golfáhugamönnum að góðu kunnur enda hefur hann helgað lífi sínu golfi undanfarna áratugi sem keppniskylfingur, eigandi á golfverslun, golflýsandi og fararstjóri. Nú glímir Steini við nýtt verkefni en hann er að jafna sig eftir að hafa veikst alvarlega af Covid fyrir nokkrum árum og ætlar sér aftur út á golfvöllinn. Einnig förum við aðeins yfir PGA Meistaramótið og auðvitað er Powerrank á sínum stað! Unbroken - ECCO - Lindin
More Episodes
Knattspyrnuþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson er gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu. Arnar er fínn kylfingur með um 10 í forgjöf en að eigin sögn kemst hann ekki neðar sökum æfingaleysis í stutta spilinu. Arnar hefur verið mjög sigursæll þjálfari á síðstu árum og í þættinum flökkum við á milli...
Published 11/15/24
Golfvallarhönnuðurinn Edwin Roald Rögnvaldsson kemur í heimsókn til okkar í Seinni níu. Golfvallahönnun fær sviðið í þessum þætti ásamt skemmtilegri umræðu um golf á mannlegum nótum. Edwin segir okkur frá því hvernig hann varð að golfvallarhönnuði. Sömuleiðis segir hann okkur ótrúlega sögu af...
Published 11/07/24
Published 11/07/24