#0099 Laddi
Listen now
Description
S01E99  – Laddi. Það þarf auðvitað ekkert að hafa fleiri orð um það. Laddi er tónlistarmaður, leikari, grínisti og algert náttúrubarn. Hann hefur haft ofan af fyrir þjóðinni lengur en flestir gera sér grein fyrir og hefur sett niður fótinn ótrúlega víða. Ferillinn hófst við trommusettið, færðist inn í leikmunadeild RÚV og síðan á svið og fyrir framan myndavélarnar. Eftir margfaldan árangur á flestum sviðum listarinnar hefur hann nú sett stefnuna á myndlist og á margt eftir ógert þar. Laddi er algert náttúruafl, gríðarlega atorkusamur og á bakvið allt grínið og glensið er auðvelt að koma auga á manninn og allt það sem undir býr. Þar býr alvara og grín, gleði og sorg í bland. Og mikið óskaplega óska ég þess að við fáum grínlausa plötu í fullri lengd á glæsilegum vínyl áður en of langt um líður — svo ég segi það í eigingjarnri frekju minni og draumalandi. Gott spjall.  – Sjóvá býður upp á STVF. Rétt dekk skipta öllu máli. Græið ykkur á góð sumardekk fyrir sumarið. Meðlimir í Stofni fá sérkjör af hjólbörðum. Skoðaðu dílana hér: www.sjova.is/einstaklingar/stofn/dekkjaafslaettir/samstarfsadilar  – Hljóðkirkjan býður upp á 3 þætti í viku. Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
More Episodes
Published 04/14/22
S01E100  – Magnús Blöndahl er sálfræðingurinn minn. Hann hefur fylgt þættinum í anda í meira en ár og það var í gegnum hlustanda þáttarins sem ég fékk ábendingu um að senda honum línu og panta tíma. Það breytti mjög miklu. Hann las mig eins og opna bók, greindi kvíðann og hegðunina hjá mér niður...
Published 04/14/22
S01E98  – Jens Ólafsson er betur þekktur sem Jenni í Brain Police. Hann er að öðrum ólöstuðum einn allra öflugasti rokksöngvari Íslandssögunnar. Hann er ógurlegur. Bæði hefur hann þennan rosalega barka, en ofan á það er hann einn mest heillandi sviðsmaður sem ég hef kynnst. Jenni er algert...
Published 03/31/22