Episodes
Extreme Ownership - How U.S. Navy SEALS Lead and Win.
Til að vera leiðtogi í þínu lífi þarft þú að taka fullt eignarhald á öllum aðstæðum í þínu lífi - engar afsakanir í boði! Í þessari bók er áralangri reynslu tveggja reyndra liðsforingja úr Navy Seals miðlað á hnitmiðaðan og auðskilinn hátt.
Bókin er bland af ótrúlegum sögum frá stríðinu í Írak og lexíum sem hægt er að nýta í okkar daglega lífi, hvort sem það er í viðskiptum eða hverju öðru teymi sem þú tilheyrir.
Mögnuð bók sem allir...
Published 10/12/22
Stutt og auðlesin bók með skilaboðum sem eiga vel við alla. Höfundurinn miðlar visku ævagamallar menningar Toltec frumbyggja frá Mexíkó og dregur fram fjögur ný samkomulög sem við ættum að gera við sjálf okkur til að verða betri og heilli manneskjur.
Samkvæmt sögu Toltec indíánanna upplifum við lífið eins og að horfa á spegil gegnum reyk, og með aðferðum höfundarins ættum við að geta séð betur gegnum reyk blekkinga og rangra ályktana sem halda aftur af okkur. Með þessum fjórum nýju...
Published 09/22/22
Tíu ástæður fyrir því að við sjáum heiminn í röngu ljósi. Heimurinn er betri en þú heldur og höfundur sýnir fram á það með tölfræðilegum staðreyndum.
Hans Rosling ásamt Ola Rosling og Önnu Rosling Rönnlund telja upp þau atriði sem helst valda því að við sjáum heiminn í oft verra ljósi en hann er.
Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar.
Published 04/13/22
Your road map to financial independence and a rich, free life. Einfaldur leiðavísir á mannamáli inn í fjármálaheiminn sem allir geta fylgt. Hvar á að fjárfesta, hvers vegna, hvaða áætlun er hagkvæmust og hvaða kostir og gallar eru við hinar ýmsu fjárfestingarleiðir. Þetta og margt fleira byggir höfundurinn á áratuga reynslu í fjármálaheiminum sem honum tekst að miðla á mjög aðgengilegan máta.
Hvort sem þú ert með reynslu eða að stíga þín fyrstu skref, þá er þessi bók góður leiðavísir að...
Published 03/23/22
Choosing a Focused Life in a Noisy World
Erum við að nota tæknina eða er tæknin að nota okkur? Samfélagsmiðlar, netmiðlar, streymisveitur og stöðugt aðgengi að upplýsingum hefur breytt lífsstíl okkar töluvert. En hverjar eru neikvæðu afleiðingarnar? Hvað ættum við að gera?
Cal Newport leggur til að takmarka aðgengi okkar að þessum efnisveitum með góðum og gagnlegum ráðum.
Published 03/14/22
How New Breakthroughs in Precision Medicine Can Transform the Quality of Your Life & Those You Love.
Þessi þétta bók fer yfir flest það sem viðkemur því að lifa lengur, sjúkdómalaus og eymslalaus. Tæknin í dag lofar ótrúlegum framförum í læknavísundum sem er farið vel yfir.
Læknigar á krabbameini, Alzheimer, hjartasjúkdómum, erfðasjúkdómum, öldrunarsjúkdómum, ræktun líffara og ótal öðru er hratt að ryðjast fram. Þekking er máttur og hér er frábær handbók um undur tækninnar sem allir...
Published 03/02/22
AI 2041 - Ten Visions for Our Future
Gervigreind (AI) mun móta þróun 21. aldarinnar. Innan tveggja áratuga mun daglegt líf verða gjörbreytt.
Í þessari bók eru settar fram 10 dæmisögur úr framtíðinni með vísindalegum skáldskap og greiningu á þeirri tækni sem er að brjótast fram.
Hvað getum við lært? Hvernig getum við undirbúið okkur fyrir allt það góða og slæma sem þessi bylting stefnir í að færa okkur?
Published 12/06/21
Einn mikilvægasti, og oft vanmetnasti hluti góðrar heilsu er án efa svefninn. Matthew Walker, svefn-vísindamaður, tekur fyrir allt sem tengist svefni í þessari mikilvægu bók og opinberar ný vísindi um allt sem tengist svefni og draumum. Mismunandi stig svefns, draumar, ábatar góðs svefns og öll þau lífsstíls vandamál sem slæmar svefn venjur geta haft á heilsu okkar, langlífi, geð og framistöðu.
Published 11/20/21
Tvær bækur um öndun ræddar.
,,Breath: The New Science of a Lost Art" eftir James Nestor og ,,The Oxygen Advantage: The Simple, Scientifically Proved Breathing Technique for a Healthyer, Slimmer, Faster and Fitter you" eftir Patrick McKeown.
Tekið upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar.
Published 10/25/21
Í bókinni Talking To Strangers veltir höfundurinn því fyrir sér hvers vegna við eigum það til að misskilja hvort annað í samskiptum okkar. Hvers vegna eigum við það til að trúa þeim sem eru óheiðarlegir? Hvað veldur því að við dæmum fólk ranglega?
Stundum verða afleiðingar þess að við skiljum ekki ókunnuga, eða drögum rangar ályktanir, skelfilegar og að því er virðist ófyrirsjáanlegar.
Þátturinn var tekinn upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar.
Published 09/10/21
Cal Newport, höfundur bókarinnar, skorar á lesandann til að endurskoða hin algengu meðmæli sem eru að ,,elta ástríðu sína” (passion mindset) þegar kemur að starfsferli og kemur með aðra nálgun, að temja sér hugarfar handverkamannsins (craftsman mindset)
Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar
Published 08/19/21
Íþróttafræðingurinn og ævintýra-íþróttamaðurinn Ross Edgley er hér með sína aðra bók. Hann lýsir upplifun sinni af því að synda umhverfis Bretlandseyjar árið 2019 og deilir hugleiðingum sínum á leiðinni ásamt því að fara yfir undirbúningsferlið, heimspekina á bakvið Stoic Sport Science, afrekssögur sem hann byggir sína þekkingu á og aðrar reynslusögur.
Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar
Published 07/01/21
Hlýnun Jarðar og allt það ójafnvægi sem mengun mannsins hefur valdið á síðustu áratugum er að ná þolmörkum. CO2 útblástur er nú um 51 milljarðar tonna á ári hverju og fer hækkandi. Afhverju? Hvað er hægt að gera? Hvernig? Hvenær? Hvað átt þú að gera í því?
Þessum spurningum og fjölda annara reynir Bill Gates, í bók sinni ,,How To Avoid a Climate Disaster", að svara.
Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar
Published 06/11/21
Hér ræðum við nýjustu bók Jordan Peterson, Beyond Order. Bókin er rituð sem mótvægi við hans fyrri bók, 12 Rules For Life - An Antidote for Chaos (sem við ræddum um í þætti #012).
Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, hlaðvarps upptökuveri Bókasafns Hafnarfjarðar.
Published 03/31/21
Er öldrun sjúkdómur sem er hægt að lækna? Er hægt að koma í veg fyrir algenga öldrunarsjúkdóma og lifa lengur við betri heilsu?
Samkvæmt því sem David Sinclair heldur fram í bókinni Lifespan er svarið já. Hann heldur því fram að öldrun sé sjúkdómur sem hægt er að lækna og byggir það á rannsóknarvinnu sem hann hefur verið hluti af í 30 ár og fer meðal annars yfir allt um líffræði öldrunar, hvernig má hægja á öldrun og meira að segja snúa öldrun við.
T
Published 03/01/21
Hvað varð til þess að bankahrunið átti sér stað 2009? Hvaða lærdóm getum við dregið af því og hvernig má koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig?
Í þættinum ræddum við hugmyndafræði bókarinnar og fórum víða. Fjármál, persónuleg ábyrgð, uppeldi, heimspeki, trú. Þetta er fyrsti þátturinn okkar með höfundaspjalli og erum Gunnlaugi mikið þakklátir fyrir það.
Þátturinn er tekinn upp í Rabbrými Bókasafns Hafnarfjarðar.
Published 02/04/21
Samningatækni er eitthvað sem allir hafa gott af að kynna sér. Chris Voss er meðal helstu sérfræðinga á þessu sviði, en hann starfaði um árabil fyrir FBI sem aðal samningamaðurinn í gíslatökum og stórum valdaránum. Reynslu sína hefur hann yfirfært yfir á önnur svið eins og í mannauðsmálum, viðskiptum og persónulegum.
Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, sem er hljóðupptökuver í Bókasafni Hafnarfjarðar.
Published 01/19/21
The Black Swan er bók um handahófs lögmálið sem Nassim Taleb kryfur til mergjar. Hugmyndin er að óvæntir atburðir hafi meiri áhrif á líf okkar en við gerum ráð fyrir og er byggð á því að við höfum of mikla trú á svokallaðar staðreyndir.
Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu sem er hljóðupptökuver Bókasafns Hafnarfjarðar.
Published 01/07/21
Í nýjasta þætti Bókabræðra ræðum við bókina 12 Rules For Life: An Antidote to Chaos (12 Lífsreglur: Mótefni við glundroða) eftir klíníska sálfræðinginn og prófessorinn Jordan B. Peterson. Markmið Peterson með bókinni er að fræða lesandann um þau atriði sem hann telur hvað mikilvægust að hver manneskja viti, til þess að geta lifað ábyrgðarfullu og ánægjulegu lífi sem lágmarkar gremju, reiði og biturð út í annað hvort náungann, lífið sjálft eða jafnvel bæði
Published 11/25/20
Hér er tekin fyrir ein allra þekktasta og mest lesna sjálfshjálparbók til þessa. Hún kom út árið 1936 og hefur selst í yfir 30 milljónum eintaka.
Við Bókabræður ræðum þessar 90 ára gömlu (en samt tímalausu) hugmyndir Dale Carnegie um mannleg samskipti, framkomu og áhrif.
Þátturinn var tekinn upp gegnum cleanfeed.net. Við biðjumst velvirðingar á hljóðtruflunum og sambandsbresti. Við þökkum svo Hrannari hjá Origo fyrir lánið á Audio Technica AT2020 hljóðnemanum.
Published 11/05/20
Jason Fung er meðal fremstu sérfræðinga um áunna lífsstílssjúkdóma í heiminum í dag. Hvers vegna fitnum við? Hvers vegna er sykursýki 2 svona útbreidd? Hvað veldur flestum áunnum lífsstílssjúkdómum? Hvaða lausnir eru í boði? Þessum og ótal fleiri spurningum svarar Jason Fung í mjög svo fróðlegri bók, ,,The Obesity Code", sem við rýnum í í þessum þætti.
Published 10/02/20
Happiness Hypothesis, eða "Tilgátan um hamingju,, eins og þýðist á íslensku, er yfirgripsmikil bók sem fjallar um hamingju okkar mannanna. Hún veltir upp tildrögum óhamingju okkar og hvað það er sem veitir okkur hamingju og merkingu í lífinu með því að grafa í sögubókunum og yfirfæra kenningarnar í nútímann.
Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu í Bókasafni Hafnarfjarðar
Published 09/16/20
Sapiens - A Brief History of Humankind er bók sem opnar huga lesandans fyrir mannkynssögunni með gagnrýnni og óheflaðari frásögn. Sagnfræðingurinn Yuval Noah Harari rekur uppruna mannskepnunnar frá því að vera “hunter gatherers” fyrir 100.000 árum fram til dagsins í dag þegar tegundin okkar stjórnar örlögum alls lífs á jörðinni.
Tekið upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar
Published 08/27/20
Atomic Habits eftir James Clear er leiðandi bók í vanastjórnun. Lífið okkar byggist upp á þeim venjum sem við höfum tamið okkur, meðvitað eða ómeðvitað, sumar góðar en aðrar slæmar.
Published 08/12/20