Búsáhaldabyltingin
Listen now
Description
Mótmælin í kjölfar efnahagshrunsins 2008 eiga engan sinn líka í sögunni. Allt byrjaði þetta friðsamlega en mótmælin stigmögnuðust samhliða reiði og ólgu í samfélaginu. Á endanum sauð upp úr og upplausnarástand ríkti á Austurvelli, þar sem eldur logaði víðs vegar, mótmælendur köstuðu skyri, eggjum og grjóti í lögreglumenn og reyndu að brjóta sér leið inn í Alþingishúsið. Stefán Eiríksson, sem var lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins á þessum tíma, rifjar í Eftirmálum upp hvernig var að vera staddur í hringiðunni á þessum fordæmalausu atburðum. Þátturinn er í boði: Nettó  World Class  Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMÁL Einn, tveir og elda
More Episodes
Fjölskylda Söndru Sigrúnar Fenton vinnur nú að því með íslenskum lögmanni að reyna að fá hana framselda til Íslands. Lögmaðurinn hefur rætt við íslensk stjórnvöld og er í sambandi við dómsmálaráðuneytið vegna málsins. Lögmaðurinn og Margrét Fenton, mamma Söndru Sigrúnar, ræða stöðuna í þættinum.
Published 09/05/24
Published 03/20/24
Nýr veruleiki blasti við í íslensku samfélagi einn sunnudagsmorgun í febrúar 2021 þegar fréttir bárust af kaldrifjuðu morði í Rauðagerði, götu í rólegu fjölskylduhverfi í Reykjavík. Sá myrti var skotinn níu sinnum fyrir utan heimili sitt. Atburðurinn var fordæmalaus, minnti einna helst á aftöku...
Published 03/04/24