03. Líkamssamsetning íþróttafólks & frammistaða
Listen now
Description
Í viðræðum við íþróttafólk, þjálfara og bara almennt í samfélagslegri umræðu verður maður oft var við þungan sem settur er á líkamssamsetningu og þá sérstaklega fituprósentu íþróttafólks. Í þessum þætti ætlum við að velta upp þeirri spurningu hvort það sé til eitthvað ideal viðmið þegar kemur að likamssamsetningu, fituprósentu eða þyngd íþróttafólks. Eins munum við fara yfir kosti og galla mismunandi mælinga, ásamt því að fjalla um það hvað við getum gert til að færa fókusinn af því að einblína á þessa markera og skoða fleiri þætti sem skipta jafn miklu ef ekki meira máli þegar kemur að frammistöðu. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná www.nutreleat.is Vonum að þú njótir! -Nutreleat teymið. P.S. Hér koma greinarnar sem nefndar eru í þættinum: https://www.mdpi.com/2072-6643/13/4/1075 https://journals.humankinetics.com/view/journals/ijsnem/27/6/article-p491.xml
More Episodes
Í þessum þætti tökum við skemmtilegt og einlægt spjall við Hafrúnu Rakel Halldórsdóttur, landsliðs- og atvinnukonu í fótbolta, þar sem við förum aðeins yfir boltann og lífið, hvernig það var að skipta úr uppeldisfélaginu, fá kallið inní landsliðið og flytja milli landa þegar hún fór yfir til...
Published 11/11/24
Í þessum þætti tökum við fyrir viðfangsefni sem snýr að fæðubótarefnum fyrir íþróttafólk - hvort að það sé eitthvað sem íþróttafólk þarf að huga að almennt eða hvort matur sé einfaldlega nóg. En þetta er einmitt viðfangsefni sem brennur á mörgum og við fáum oft spurningar varðandi. Ef þú stundar...
Published 10/28/24