09. Örþáttur: Kreatín - hvernig virkar það, hvað sýna rannsóknir & er það öruggt til inntöku?
Listen now
Description
Í þessum örþætti tökum við fyrir efni sem mörg eru farin að kannast við - en það er einmitt afkastaaukandi fæðubótarefnið kreatín. Í þættinum fer Arnar Sölvi yfir virkni þess í líkamanum, í hvaða aðstæðum það gæti gagnast, hvað rannsóknir sýna þegar kemur að áhrifum og hvort það sér öruggt til inntöku. En þetta eru einmitt spurningar sem brenna á mörgum og við fáum oft spurningar varðandi. Greinar um kreatín fyrir áhugasama: https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/10694141/ https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/9627907/ https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/11708707/ https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/12701816/ Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná www.nutreleat.is Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback! Vonum að þú njótir, -Nutreleat teymið.
More Episodes
Í þessum þætti tökum við skemmtilegt og einlægt spjall við Hafrúnu Rakel Halldórsdóttur, landsliðs- og atvinnukonu í fótbolta, þar sem við förum aðeins yfir boltann og lífið, hvernig það var að skipta úr uppeldisfélaginu, fá kallið inní landsliðið og flytja milli landa þegar hún fór yfir til...
Published 11/11/24
Í þessum þætti tökum við fyrir viðfangsefni sem snýr að fæðubótarefnum fyrir íþróttafólk - hvort að það sé eitthvað sem íþróttafólk þarf að huga að almennt eða hvort matur sé einfaldlega nóg. En þetta er einmitt viðfangsefni sem brennur á mörgum og við fáum oft spurningar varðandi. Ef þú stundar...
Published 10/28/24