Episodes
Published 04/11/23
Líf fjölskyldu Eggerts J Jónssonar kollsteyptist einn blíðan sumardag árið 1962 þegar heimilisfaðirinn varð bráðkvaddur. Afkomendur hans, börn og barnabörn, leita enn svara um andlátið sextíu árum síðar. Ný gögn í málinu hafa varpað ljósi á glæpsamlega vanrækslu þegar kom að rannsókn fráfallsins, en spurningin sem liggur í loftinu er sú sama og verið hefur um aldir alda: Hver hagnast á glæpnum? Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson.
Published 04/11/23
Valdatafl, vanefndir og pólitískar hrókeringar Keflavík var bæjarfélag í örum vexti þegar ungur og frambærilegur Sjálfstæðismaður, Eggert J Jónsson, var ráðinn sem bæjarstjóri og flutti með konu sinni og þremur börnum suður með sjó að hefja nýtt líf. Hann naut vinsælda í bænum en pólitísk undanbrögð áttu eftir að valda því að hann tók við embætti bæjarfógeta og hóf að sækja til saka menn, og sekta fólk sem áður hafði mátt eiga von á því að sleppa auðveldlega frá löngum armi laganna. Sá...
Published 04/11/23
Líf fjölskyldu Eggerts J Jónssonar kollsteyptist einn blíðan sumardag árið 1962 þegar heimilisfaðirinn varð bráðkvaddur. Afkomendur hans, börn og barnabörn, leita enn svara um andlátið sextíu árum síðar. Ný gögn í málinu hafa varpað ljósi á glæpsamlega vanrækslu þegar kom að rannsókn fráfallsins, en spurningin sem liggur í loftinu er sú sama og verið hefur um aldir alda: Hver hagnast á glæpnum?
Published 04/05/23
Á tíunda áratugnum réðst írska lögreglan í gríðarlega umfangsmikla rannsókn á fyrirhuguðum fíkniefnainnflutningi og ákærði í fyrsta sinn fyrir samsæri um slíkan innflutning. Það kemur ef til vill á óvart að það var Íslendingur sem fyrstur manna var ákærður fyrir téð lagaákvæði, Sigurður Arngrímsson. Málið teygir sig yfir hálfan hnöttinn og er ein stærsta ráðgátan á ævintýralegum ferli Jósafats Arngrímssonar. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson. Aðstoð við samsetningu og frágang:...
Published 12/21/22

Við höldum nú áfram að rekja ævintýrilegan ferill Jósafats Arngrímssonar. Hann settist að á Írlandi, breytti nafni sínu í Joseph Grimson, yfirleitt nefndur Joe Grimson, og tók til óspilltra málanna. Með nýtt nafn, nýja fjölskyldu og nýjan leikvöll þar sem enginn í fjármálalífinu þekkti hann, var framtíðin einsog óskrifað blað, já eða óútfylltur víxill. Í þættinum er rakið umfangsmikið sakamál sem snerist um sölu á skreið til Nígeríu frá norskum smábæ og við sögu koma írskir gangsterar,...

Á áttunda áratugnum var ágeng rannsóknarblaðamennska að fá byr undir báða vængi erlendis. Komin var fram ný kynslóð fréttamanna sem hikaði ekki við að svipta hulunni af spillingu og misgjörðum valdhafa og auðjöfra. Einn slíkur blaðamaður hér á landi var Vilmundur Gylfason, sem fjallaði um málefni Jósafats Arngrímssonar í óháðum fréttaþætti á RÚV og "dansaði línudans á meiðyrðalöggjöfinni" að eigin sögn. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson. Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni...
Published 12/21/22
Published 12/16/22