Episodes
Gestur Kokkaflakks að þessu sinni er Georg Leite sem á meðal mjög stórs hóps fólks er betur þekktur sem Goggi á Kalda. Við ræðum bransann, Covid lokanir og að þó þær séu erfiðar fyrir veitingabransann leynist kannski eitthvað jákvætt í þeim. Við ræðum ljósmyndarann Georg, leikarann Georg Brasilíumanninn Georg og alla þá ólíku hatta sem hann ber.  Mjög skemmtilegt!    Þessi þáttur er síðasti þáttuinn í fyrstu seríu af Kokkaflakki í eyrun og við það tilefni vil ég þakka kærlega frábær viðbrögð...
Published 04/27/21
Published 04/27/21
Gestur þáttarins í þetta sinn er næringarfræðingurinn og vísindakonan Anna Sigríður Ólafsdóttir. Við áttum afar áhugavert spjall um matvendni barna og tengsl matvendni við ADHD og einhverfu sem hún hefur verið að rannsaka í dálítinn tíma. Hún stóð fyrir bragðlaukaþjálfun fyrir matvönd börn, námskeið sem ég fór á með son minn og var frábært! Við ræddum þetta allt sem og auðvitað líka nýju sjónvarpsþáttaröðina sem hún er að gera fyrir RÚV og heitir Nærumst og njótum.    Mjög áhugavert og...
Published 04/20/21
Við Alba erum mætt aftur eins og lofað var með þátt um vín sem heitir „Forsetaspjall um vín“ vegna þess að jú, Alba er eins og frægt er orðið forseti Vínþjónasamtaka Íslands og ég fyrrverandi. Spjallið fór út um víðan völl að vanda. Við ræðum um Bordeaux og vín sem hefur ferðast út í geim. Við tölum einnig um Austurríki, ensk freyðivín og svo miklu miklu fleira. Mjög gaman að vanda.
Published 04/13/21
Gestur þáttarins að þessu sinni er Eyþór Mar Halldórsson matreiðslumeistari. Eyþór er frá Húsavík eins og svo margir aðrir góðir kokkar. Hann á og rekur þrjá veitingastaði í Reykjavík sem allir ganga mjög vel og hefur komið að opnun fjölda annarra. Við ræðum þetta auðvitað, ferilinn hingað til og hvernig hann komst þangað sem hann er kominn í dag.  Eins og endranær er farið út um víðan völl og við meira að segja tölum um jafnréttismál í veitingabransanum í dag. Mjög skemmtilegt spjall, enda...
Published 04/06/21
Ef einhvern tímann hefur verið þörf á fíflaskap og vitleysisgangi þá er það núna. Marsmánuður er búinn að vera að hamast við að vera marsmánuður, gefandi fólki von um betri tíð, blóm í haga og sólskin en kippir okkur svo rækilega niður á jörðina jafnóðum með gulum viðvörunum og frosti. Og svo ætlar veiruandskotinn aldrei að láta okkur í friði heldur.    Nú þá er bara eitt að gera, fá Davíð Örn og Fanneyju Dóri í heimsókn og henda í sleggjudómaþátt, þar sem við hömumst öll við að tala hvert...
Published 03/30/21
Gestur minn í þessum þætti er Árni Ólafur Jónsson, matreiðslumaður sem á og rekur veitingastaðinn Matr í Norræna húsinu. Árni hefur komið víða við og kom einhvern veginn dáldið bakdyramegin inn í veitingabransann. Hann lærði kokkinn í New York og vann þar áður en hann flutti til Íslands til að taka þátt í því að búa til hina frábæru matarþætti Hið blómlega bú sem sýndir voru á Stöð 2. Við ræddum þættina, veitingabransann á Íslandi og í Bandaríkjunum, útbruna og fleira hressandi. Gífurlega...
Published 03/23/21
Það hefur verið kallað eftir umfjöllun um vín í Kokkaflakki í eyrun og ef það er eitthvað sem kokkaflakkarinn er þá er það maður fólksins sem hlustar og tekur öllum ábendingum fagnandi. Það er einmitt þess vegna sem ég fékk til mín góða vinkonu mína, hana Ölbu Hough sem er vínþjónn og vínfræðingur. Við ræðum allskonar sem tengist víni og veitingaheiminum bæði vítt og breytt eins og við er að búast. Það koma þó upp óvæntir hlutir eins og veðurbreytingar af mannavöldum, rasismi ásamt málum sem...
Published 03/16/21
Eftir stutt veikindafrí snýr Kokkaflakkarinn aftur með glænýjan þátt inspireraðan af þessu fríi, því eftir nokkurra daga spítalalegu í kjölfar aðgerðar fór ég að spögulera í því hverskonar svakalegt batterí spítalaeldhús hljóti að vera. Og þá er auðvitað ekki nema eitt að gera og það er að hafa samband við manninn sem stýrir eldhúsinu á Landsspítalanum Háskólasjúkrahúsi og ræða það aðeins við hann. Sá heitir Jón Haukur Baldvinsson. Hann tók við stjórnartauminum í spítalaeldhúsinu á síðasta...
Published 03/09/21
Í þessum 25. þætti af Kokkaflakki í eyrun fer ég í heimsókn til goðsagnar á Íslandi, en það er enginn annar en Helgi Vilhjálmsson sem alltaf er kenndur við Góu. Mig hefur lengi langað að tala við hann og náði loksins að manna mig upp í það og afrakstur þess er hér fyrir þig.  Við ræddum heima og geima, upphafið á Góu, fyrstu karamelluvélina og hvernig Hraun er mögulega fyrirmynd af öðrum alþjólegum súkkulaðistykkjum. Við töluðum líka um upphafið á KFC, kjúklingamenningu á Íslandi og svo...
Published 02/23/21
Það er febrúar og hvaða matur er fólki þá efstur í huga? Jú mikið rétt, grillmatur. Gestur þáttarins heitir Alfreð Fannar Björnsson og er líka þekktur sem BBQ kóngurinn. Hann er miklll dellukarl og eftir að hafa lagt bíladelluna og veiðidelluna á hilluna hellti hann sér út í grilldelluna af fullum þunga, þó hann hafi ekki vitað neitt um mat þegar hann byrjaði. Hann fór að grilla á samfélagsmiðlunum og í kjölfarið hafði Stöð 2 samband og þar stýrir hann nú grillþáttum. Við ræddum þetta og...
Published 02/16/21
Þau sem hafa hlustað á Kokkaflakkið hafa kannski tekið eftir því að ég er búinn að vera að spá í hvernig standi á því að sumur matur er frekar hugsaður handa körlum og annar konum. Til þess að hjálpa mér til þess að komast til botns í þessu fékk ég í heimsókn til mín á Vínstúkuna, Maríu Hjálmtýsdóttur kynjafræðikennara. Við María höfum verið saman í matarklúbbi og hún kemur alltaf með Mole. Við tölum um það, um furðulega hluti sem fólk hendir og svo þessa kynjavinkla í mat og drykk. Mjög...
Published 02/09/21
Í þessum þætti tölum við um matarsóun, umhverfisvernd, sótsporið sem máltíðin okkar skilur eftir sig og hvað við getum gert til að spyrna gegn þessum vandamálum. Til þess að ræða þetta fékk ég til mín Dóru Svavarsdóttur matreiðslumann sem er mikil baráttukona gegn matarsóun og er í forsvari fyrir Reykjavíkurdeild Slow food. Við förum rækilega yfir þetta allt saman í frábærlega skemmtilegu spjalli þó málefnið sé alvarlegt.
Published 02/02/21
Þessi þáttur er á ensku því viðmælandi minn að þessu sinni er Hlal Jarah sem er frá Sýrlandi. Við þekkjum hann flest sem Hlal á Mandi. Hann rekur nokkra veitingastaði á höfuðborgarsvæðinu og er með tvo í viðbót á teikniborðinu. Annar þeirra er fyrsti vatnspípustaðurinn í Reykjavík og þar hittumst við og áttum þar gott spjall. Við töluðum um kebab, sýrlenskan mat, fjölskyldu og smá um pólitík. En samt mest um mat.
Published 01/26/21
Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er Jakob Jakobsson sem lengi var kenndur við Jómfrúna, sem er í raun alls ekki skrítið því hann stofnaði hana og átti lengi ásamt Guðmundi manninum sínum. Jakob var líka fyrsti karlmaðurinn til að útskrifast frá dönskum kokkaskóla sem smurbrauðsjómfrú en þangað til hafði það verið kvennastarf. Við tölum um það, upphafið á veitingahúsinu Jómfrúnni, hvernig það er að vera gay í veitingabransanum í Reykjavík og líka nýja frábæra staðinn hans og Guðmundar í...
Published 01/19/21
Það eru margir sem prófa að tileinka sér vegan-lífsstíl í janúar í tilefni af Veganúar sem viðmælandi þáttarins segir að sé hátíð fyrir veganista.  Kokkaflakkarinn er áhugasamur um alla anga matarhegðunar fólks og fékk því eina helstu klappstýru veganista í spjall en það er engin önnur en hún Guðrún Sóley Gestsdóttir sem um ræðir. Við ræddum veganmat og lífsstílinn, fordómana sem þau sem kjósa að vera vegan verða fyrir og hversu stressandi það er að skrifa matreiðslubók, sem hún jú hefur...
Published 01/12/21
Hér er fyrsti þátturinn á nýju ári og í honum kveður við dáldið annan tón en áður, þó umræðuefnið sé auðvitað ennþá matartengt. Gestur þáttarins í þetta sinn er Ragnhildur Þórðardóttir sem er betur þekkt sem Ragga Nagli. Hún heldur úti hlaðvarpinu Heilsuvarpið og heimasíðunni ragganagli.com þar sem hún fjallar um allskonar heilsutengd málefni. Þetta var geysilega gott spjall þar sem við fórum yfir hvað það er að borða í núvitund, hvað það getur gert fólki að skammast sín sífellt fyrir hvað...
Published 01/05/21
Gestur minn í þessum þætti er myndlistarmaðurinn Kristinn Guðmundsson. Kristinn býr í Brussel en með nútímatækni tókst okkur að spjalla saman yfir hafið og maður lifandi hvað það var skemmtilegt spjall. Kristinn hefur í nokkur ár verið að gera þætti sem heita Soð sem slógu fyrst í gegn á Youtube sem rötuðu svo þaðan í Sjónvarp Símans og nú er hann kominn í hið virðulega Ríkissjónvarp, sem sumir virðulegir áhorfendur skilja misvel. Kristinn kemur til dyranna eins og hann er klæddur, bæði í...
Published 12/28/20
Jólagestur þessa þáttar er enginn annar en Læknirinn í eldhúsinu, Ragnar Freyr Ingvarsson. Hann var á tímabili vinsælasti matarbloggari landsins, það vinsæll að hann var beðinn um að koma blogginu fyrir í bók til útgáfu. Síðan hefur hann gert nokkrar bækur og einnig sjónvarpsseríur. Við ræddum þetta auðvitað allt saman sem og Covid 19, því Ragnar var settur sem yfirlæknir Covid-göngudeildar Landsspítalans sem komið var upp á mettíma. Við töluðum líka um mat, jólamat og sænskan mat. Mjög...
Published 12/22/20
Það eru að koma jól og þá dugir ekkert annað en að henda í jólaþátt. Í þessum þætti fæ ég til liðs við mig tvo matreiðslumenn og við förum yfir jólahefðir í mat hjá þeim og þjóðinni allri. Við förum líka rækilega yfir hvaða jólamatur er ofmetinn og hvaða jólamatur er vanmetinn án nokkurrar ritskoðunnar og þar falla nokkrar sleggjur. Ef grant er hlustað má líka finna allskonar pro tip sem ættu að hjálpa fólki við matargerð á jólum, enda eru hér á ferð tveir af færustu matreiðslumönnum Íslands...
Published 12/15/20
Gestur þessa þáttar er Hlédís Sveinsdóttir. Hlédís er sannkölluð hamhleypa til verka sem hefur látið allskonar hluti gerast af því að henni hefur fundist þörf á því. Hún stofnaði vefsíðu sem gerði fólki kleift að ættleiða kindur og lömb, var ein af upphafsfólki og mikil talskona Beint frá býli og rekjanleika landbúnaðarafurða. Hún er líka önnur tveggja kjarnorkukvenna sem hafa staðið að matarmarkaði Búrsins, fyrst á bílaplaninum við Nóatún og síðustu ár í Hörpunni tvisvar sinnum á ári. Með...
Published 12/08/20
Í þætti vikunnar hitti ég kokkinn Sigurð Laufdal. Hann er í fullri vinnu við að undirbúa sig fyrir virtustu einstaklingskeppni í matreiðslu í heiminum, Bocuse d´Or í Lyon. Hann var í fjórða sæti í undankeppni Evrópu, vann þar verðlaun fyrir besta fiskréttinn og ætlar sér að vinna aðalkeppnina í júní. Hann hefur farið áður í þessa keppni og varð þá í 5. sæti en mætir nú aftur, reynslunni ríkari og mun betur undirbúinn. Við tölum um ferilinn og aðdragandann að þessu öllu saman og hversu stór og...
Published 12/01/20
Gestur þessa þáttar er Björn Steinar Jónsson. Hann er verkfræðingur sem bjó lengi í Danmörku en það er ekki þess vegna sem ég ákvað að biðja hann um að koma í viðtal. Nei, það er vegna þess að hann er mjög merkilegur matarfrumkvöðull á Íslandi. Hann framleiðir hágæða salt á sjálfbæran hátt vestur á fjörðum. Hann er líka einn eiganda veitingahússins Skál! á Hlemmi og rekur heildsölu sem flytur inn náttúruvín. Við ræðum þetta allt saman en þó fyrst og fremst hið merkilega fyrirbæri salt, sem...
Published 11/24/20
Í þessum fyrsta þætti í seríu tvö af Kokkflakki í eyrun er kafað hyldjúpt í undraheim súrdeigsbaksturs og nördaskapsins í kringum hann. Það hefur varla farið framhjá mataráhugafólki hvaða áhrif samkomubann og fjarlægðartakmarkanir hafa haft á súrdeigsáhuga fólks um allan heim. Þegar áhuginn breiddist út hraðar en veiran var það Ragnheiður Maísól Sturludóttir sem bar hitann og þungann af því að hjálpa fólki með sín fyrstu skref hér á landi og hún er gestur þáttarins að þessu sinni.  Ragnheiður...
Published 11/17/20
Þá er komið að honum, þættinum sem enginn er búinn að vera að bíða eftir, lokaþætti fyrstu seríu Kokkaflakks í eyrun! Í þennan þátt fékk ég til mín tvö þeirra sem ég heimsótti í sjónvarpsþáttunum Kokkaflakk, þau Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas og Davíð Örn Hákonarson. Mig langaði að vita hvað á daga þeirra hefði drifið síðan við heimsóttum þau annars vegar í París og hins vegar í Los Angeles, svo við fórum aðeins yfir það. En aðallega ræddum við þó hvaða matur er ofmetinn, hvaða matur er...
Published 11/10/20