Lífsreynslusögur Vikunnar
Listen now
Description
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:  -Sannleikurinn breytti lífi mínu:  Æska mín var erfið en á unglingsárunum kynntist ég konu sem átti eftir að breyta lífi mínu og fjölskyldu minnar mjög til góðs.  -Forboðnar ástir:  Maðurinn minn hélt fram hjá mér og þegar ég ákvað að fyrirgefa honum og taka saman við hann aftur varð allt vitlaust í fjölskyldu minni sem vildi að ég segði endanlega skilið við hann. Ég mun aldrei sjá eftir því að gefa honum annað tækifæri þótt hann hafi ekki átt það skilið.  -Óheiðarleg tengdadóttir:  Elsti sonur minn varð faðir ungur að árum, eða um tvítugt. Ég hef alla tíð verið í góðu sambandi við barnsmóður hans og lengi vel skildist mér á henni að hann sýndi henni lítinn stuðning.  -Ástin – taka tvö:  Ég elskaði manninn minn heitt og hélt að við yrðum saman alla tíð, í gegnum súrt og sætt, sorgir og gleði. Á erfiðum tíma í lífi okkar brást hann og ég var svo sár að ég ætlaði aldrei að bindast öðrum manni ástarböndum.  -Dýrt góðverk:  Þegar amma var unglingur upplifði hún mikinn samhug og hjálpsemi fólksins í sveitinni þegar erfiðleikar komu upp á einum bænum. Hún sá einnig að fólk sem hún hélt að væri nánast algott var það sannarlega ekki, heldur sýndi það á sér afar ljóta hlið. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
More Episodes
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Fátæka konan: „Eitt sinn vann ég með konu sem bar sig illa í vinnunni vegna fátæktar og tókst að hafa gott af fyrirtækinu fyrir vikið. Löngu síðar lenti ég í því sjálf að vera ranglega ásökuð um svipað en öllu verra athæf.“ - Skelfilegur...
Published 12/26/21
Published 12/26/21
 Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Með öllum ráðum: „Foreldrar mínir bjuggu saman í nokkur ár en fóru hvort í sína áttina þegar ég var í kringum fimm ára. Sambandið við pabba eftir skilnaðinn var mjög gott og ég naut þess að hitta hann. Þegar hann fór að vera með annarri...
Published 12/19/21