Lífsreynslusögur Vikunnar
Listen now
Description
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:  - Kennari á flótta ...:  „Tóta vinkona kynntist manninum sínum undir nokkuð sérstökum kringumstæðum. Það má segja að hann hafi hlaupið í fangið á henni, á flótta undan ágengri konu.“  - Falskur og fláráður:  „Ég ólst upp í bæ á landsbyggðinni. Bekkjarbróðir minn í grunnskóla þótti stríðinn en í dag myndi hegðun hans vera kölluð einelti. Við erum báðir iðnaðarmenn og störf okkar hafa nokkrum sinnum skarast, síðast þannig að ég mun aldrei starfa með honum eða tala við hann framar.“  - Hræðileg hótelstýra:  Eitt sumar fyrir mörgum árum vann ég á hóteli úti á landi. Það var ótrúleg reynsla og hef ég hvorki fyrr né síðar átt yfirmann á borð við hótelstýruna sem stjórnaði öllu með harðri hendi og var óheiðarleg að auki.“  - Sökuð um vanrækslu af læknum:  „Þegar sonur minn fæddist ríkti mikil gleði í fjölskyldunni. Hann var fyrsta karlkyns barnabarn foreldra minna en við systkinin áttum fyrir stóran stelpnahóp. Það var oft gert grín að því að pabbi, sem er mikill tónlistarmaður, gæti auðveldlega stofnað kvennakór með dætrum sínum og afabörnum.“  - Lúmskur og lyginn yfirmaður:  „Fyrir nokkrum árum vann ég hjá fyrirtæki þar sem var ákaflega góður mórall. Á skrifstofunni starfaði hópur kvenna og við vorum allar vinkonur. Ég hlakkaði til að koma í vinnuna allt þar til skipt var um yfirmann.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
More Episodes
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Fátæka konan: „Eitt sinn vann ég með konu sem bar sig illa í vinnunni vegna fátæktar og tókst að hafa gott af fyrirtækinu fyrir vikið. Löngu síðar lenti ég í því sjálf að vera ranglega ásökuð um svipað en öllu verra athæf.“ - Skelfilegur...
Published 12/26/21
Published 12/26/21
 Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Með öllum ráðum: „Foreldrar mínir bjuggu saman í nokkur ár en fóru hvort í sína áttina þegar ég var í kringum fimm ára. Sambandið við pabba eftir skilnaðinn var mjög gott og ég naut þess að hitta hann. Þegar hann fór að vera með annarri...
Published 12/19/21