Lífsreynslusögur Vikunnar
Listen now
Description
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:  - Ó, ó, óbyggðaferð:  „Eitt árið lenti ég í nokkrum kröggum og þurfti aðstoð við að koma málum mínum í lag. Konan sem aðstoðaði mig í gegnum það ferli varð ágæt vinkona mín og ég er alsæll með að eiga smáþátt í því að hún fann hamingjuna.“  - Dropinn holar steininn:  „Ég var gift í rúman áratug yndislegum manni. Það skyggði samt á hamingju mína hvernig tengdamóðir mín kom fram við mig. Ég var aldrei nógu fín fyrir son hennar.“  - Í hefndarhug:  „Vinkona mín var um árabil gift virtum manni sem gegndi ábyrgðarmiklu embætti. Heima fyrir var hann svo stjórnsamur að það var nánast fyndið, ef það hefði ekki kostað vinkonu mína áratugi nánast í fangelsi ... í gullbúri þó.“  - Hættuleg níska:  „Fyrri maðurinn minn var með eindæmum sparsamur og versnaði bara með aldrinum. Fyrst fannst mér þetta í lagi því sjálf er ég engin eyðslukló en svo fór þetta að verða þreytandi. Eitt atvik varð til þess að mér varð endanlega nóg boðið.“  - Nýja mamman:  „Ég var sjö ára þegar ég missti móður mína og að verða níu ára þegar pabbi fór að vera með annarri konu. Konan var aldrei beint vond en hún gætti þess að halda góðri fjarlægð milli sín og okkar systkinanna.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
More Episodes
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Fátæka konan: „Eitt sinn vann ég með konu sem bar sig illa í vinnunni vegna fátæktar og tókst að hafa gott af fyrirtækinu fyrir vikið. Löngu síðar lenti ég í því sjálf að vera ranglega ásökuð um svipað en öllu verra athæf.“ - Skelfilegur...
Published 12/26/21
Published 12/26/21
 Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Með öllum ráðum: „Foreldrar mínir bjuggu saman í nokkur ár en fóru hvort í sína áttina þegar ég var í kringum fimm ára. Sambandið við pabba eftir skilnaðinn var mjög gott og ég naut þess að hitta hann. Þegar hann fór að vera með annarri...
Published 12/19/21