Lífsreynslusögur Vikunnar
Listen now
Description
 Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Grannkonan góða: „Fyrir tveimur árum flutti móðir mín í blokk. Hún hafði ákveðið að minnka við sig eftir að pabbi dó og þetta var falleg íbúð, fullkomin fyrir eina manneskju. Í byrjun gekk allt vel og mamma var mjög ánægð en svo flutti ný kona í húsið og þá breyttist allt.“ - Hrökklaðist úr skóla vegna ofbeldis: „Sonur minn var lagður í einelti nánast alla skólagönguna. Hvað eftir annað reyndum við að fá skólayfirvöld itl að taka á málinu en ekkert að gert. Sonur minn var sendur til félagsráðgjafa og sálfræðings skólans því kennarinn hans var viss um að hann væri vandamálið, ekki drengurinn sem níddist á honum. Við komumst að því síðar að sá var sonur vinkonu kennarans ...“ - Maðurinn minn reyndi að svipta sig lífi: „Ég get ekki sagt að hjónaband mitt hafi verið hamingjusamt. Frá fyrstu kynnum okkar hjóna var ég undir hælnum á honum. Hann var drykkjusjúkur og auk þess mjög stjórnsamur. Hann hikaði ekki við að beita mig andlegu og líkamlegu ofbeldi ef ég lét ekki að vilja hans. Ef ég stóð fast á mínu hótaði hann að fremja sjálfsmorð ... svo gerði hann alvöru úr hótun sinni.“ - Presturinn notfærði sér vanlíðan mína: „Sumarið sem ég varð átján ára fór ég ásamt vinkonu minni að vinna á hóteli út á landi. Ævintýraþráin rak okkur þangað og tilhugsunin um að vinna á vinsælum ferðamannastað fannst okkur mjög spennandi. Fljótlega eftir að við komum á staðinn varð mér hins vegar ljóst að einn íbúanna á staðnum heillaði mig mun meira en þeir ferðamenn sem áttu leið um ...“ - Spádómarnir sem rættust: „Ég fór til spákonu þegar ég var að verða 18 ára. Ekki var ég sátt við allt sem hún sagði, ég man það, en skrifaði spána samviskusamlega niður á miða. Ég gleymdi spádómnum fljótlega og týndi miðanum en áratugum seinna fann ég hann og þá brá mér heldur betur í brún. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
More Episodes
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Fátæka konan: „Eitt sinn vann ég með konu sem bar sig illa í vinnunni vegna fátæktar og tókst að hafa gott af fyrirtækinu fyrir vikið. Löngu síðar lenti ég í því sjálf að vera ranglega ásökuð um svipað en öllu verra athæf.“ - Skelfilegur...
Published 12/26/21
Published 12/26/21
 Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Með öllum ráðum: „Foreldrar mínir bjuggu saman í nokkur ár en fóru hvort í sína áttina þegar ég var í kringum fimm ára. Sambandið við pabba eftir skilnaðinn var mjög gott og ég naut þess að hitta hann. Þegar hann fór að vera með annarri...
Published 12/19/21