Lífsreynslusögur Vikunnar
Listen now
Description
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:  - Undarlegir endurfundir: „Þegar ég var unglingur gætti ég um tíma barna fyrir konu sem þótti skrautleg og skar sig úr í bænum þar sem við bjuggum. Löngu síðar lágu leiðir okkar saman aftur og þá hafði margt breyst.“  - Jólin með mínum fyrrverandi: „Á jólunum fyrir þremur árum var ég óhamingjusamari en ég hafði nokkru sinni verið áður. Ég vissi að hjónabandi mínu var lokið. Sambandið var einfaldlega búið, allt dautt á milli okkar. Mér hafði liðið illa lengi en ekki haft hugrekki til að taka skrefið. Jólin voru alltaf uppáhaldsárstíð hjá mér en alein inni á klósetti eftir miðnætti á gamlárskvöld tók ég ákvörðun um að skilja. Hið undarlega er að bestu jól ævi minnar eru nýliðin og ég varði þeim einmitt með þessum sama manni.“  - Mamma spillti sambandi okkar systra: „Við vorum bara tvær systurnar. Agnes þremur árum yngri en ég. Mamma hélt því fram að ég hefði verið afbrýðisöm út í systur mína alveg frá því að hún fæddist. Ég vil hins vegar ekki kannast við að hafa nokkru sinni fundið fyrir öfund í garð hennar en viðbrögð mömmu ýttu ævinlega undir samkeppni og reiði milli okkar.“ - Guðsgjöf til mannkyns … : „Þegar langþráður sonur bættist við fjölskylduna fundum við systurnar fjórar vel fyrir því. Látlaust eftirlæti foreldra og annarra ættingja hafði án efa einnig mikil áhrif á bróður minn og ekki til góðs. Hann hefur alla tíð vitað allt betur en aðrir og kunnað að ná sínu fram með samblandi af sjarma og frekju.“ - Vonda stjúpan – góða stjúpan: „Ófá ævintýri fjalla um vondar stjúpur sem láta einskis ófreistað til að gera stjúpbörnum sínum lífið leitt, jafnvel koma þeim fyrir kattarnef. Hans og Gréta, Mjallhvít og Öskubuska koma strax upp í hugann. Sjálf hef ég upplifað að eiga stjúpu, alls ekki af betri gerðinni, og undanfarin ár hef ég verið stjúpmóðir tveggja drengja.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
More Episodes
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Fátæka konan: „Eitt sinn vann ég með konu sem bar sig illa í vinnunni vegna fátæktar og tókst að hafa gott af fyrirtækinu fyrir vikið. Löngu síðar lenti ég í því sjálf að vera ranglega ásökuð um svipað en öllu verra athæf.“ - Skelfilegur...
Published 12/26/21
Published 12/26/21
 Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Með öllum ráðum: „Foreldrar mínir bjuggu saman í nokkur ár en fóru hvort í sína áttina þegar ég var í kringum fimm ára. Sambandið við pabba eftir skilnaðinn var mjög gott og ég naut þess að hitta hann. Þegar hann fór að vera með annarri...
Published 12/19/21