Lífsreynslusögur Vikunnar
Listen now
Description
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:  - Ógeðslegi karlinn á efri hæðinni: „Ég var erfiður unglingur. Milli okkar mömmu ríkti stríð sem lauk með því að hún rak mig að heiman. Fyrst á eftir reyndi ég að búa hjá pabba en fór fljótlega að leigja. Leigusalinn bjó á efri hæðinni og fljótlega komst ég að því að hann ætlaðist til að fá ýmislegt fleira en peninga fyrir íbúðina.“  - Þögul fyrirlitning: „Þegar við rugluðum saman reytum, ég og seinni maðurinn minn, höfðum við bæði verið í sárum í nokkur ár eftir makamissi. Börnin mín tvö tóku sambandi okkar vel en ekki er hægt að segja það sama um dóttur mannsins míns.“ - Leynihólfið í skrifborðinu: „Ég hef oft sagt að konurnar í fjölskyldu minni séu ekkert sérlega heppnar í ástum, það er að ömmu undantekinni. Hún og afi hafa átt dásamlegt samband í yfir fimmtíu ár en mamma, móðursystur mínar, systur mínar og ég höfum allar lent í alls konar uppákomum með alla vega karla. Nýlega komst ég þó að því að ekki var allt sem sýndist í hjónabandi afa og ömmu.“  - Veit ekki hvort ég get fyrirgefið honum: „Þegar bróðir minn var barn að aldri var hann hvers manns hugljúfi. Eftir að hann fullorðnaðist breyttist hann til hins verra og ég hef núorðið lítinn áhuga á að vera í samskiptum við hann. Í raun engan eftir að hann fór illa með dóttur mína.“  - Ókunnugleg hljóð um miðja nótt: „Fyrir mörgum árum var ég næturvörður í fyrirtæki hér í Reykjavík. Ég var í námi á daginn og það hentaði ágætlega að taka fjórar slíkar vaktir í röð og eiga síðan frí í sex daga. Þetta var þægileg vinna og ég gat lært á nóttunni. En mér varð ekki um sel þegar ég fór að heyra undarleg hljóð í byggingunni og verða var við ýmislegt sem ekki verður fyllilega skýrt á jarðbundinn hátt.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
More Episodes
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Fátæka konan: „Eitt sinn vann ég með konu sem bar sig illa í vinnunni vegna fátæktar og tókst að hafa gott af fyrirtækinu fyrir vikið. Löngu síðar lenti ég í því sjálf að vera ranglega ásökuð um svipað en öllu verra athæf.“ - Skelfilegur...
Published 12/26/21
Published 12/26/21
 Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Með öllum ráðum: „Foreldrar mínir bjuggu saman í nokkur ár en fóru hvort í sína áttina þegar ég var í kringum fimm ára. Sambandið við pabba eftir skilnaðinn var mjög gott og ég naut þess að hitta hann. Þegar hann fór að vera með annarri...
Published 12/19/21