Rauða borðið 3. okt - Líbanon, hægrið, samkeppni og sagnfræði
Description
Fimmtudagurinn 3. október
Líbanon, hægrið, samkeppni og sagnfræði
Við byrjum á Radíó Gaza: María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp ræðir um ástandið í Mið-Austurlöndum við Margréti Marinósdóttur alþjóðastjórnmálafræðing og Guðrúnu Margréti Guðmundsdóttur mannfræðing sem báðar þekkja þennan heimshluta vel. Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi er búinn að stofna Lýðræðisflokkinn. Hann kemur og segir okkur frá flokknum, hægrinu og samfélaginu. Benjamín Julian verkaefnastjóri í verðlagseftirliti Alþýðusambandsins segir okkur frá verðsamkeppni á matvörumarkaði og hvernig búðir geta haldið uppi verði þar sem samanburður er illframkvæmanlegur. Í lokin koma ungir sagnfræðingar, Unnur Helga Vífilsdóttir, Þórey Einarsdóttir og Kolbeinn Sturla G. Heiðuson, og segja okkar frá rannsóknum sínum og stöðu sögunnar í samtímanum.
Föstudagurinn 4. október
Vikuskammtur: Vika 40
Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Anita Da Silva Bjarnadóttir öryrki og ungur Roði, Grímur Hákonarson leikstjóri, Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Margrét Manda Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af...
Published 10/04/24
Miðvikudagurinn 2. október
Krakkaþing, elítur, eftirlaunafólk, búddistar og Einar Sigurður
Krakkaþing Fíusólar hefur skilað niðurstöðum sínum. Tinna Sigfinnsdóttir framhaldsskólanemi og Guðmundur Brynjar Bergsson grunnskólanemi segja okkur frá þeim ásamt Þórunni Örnu Kristjánsdóttur...
Published 10/02/24