52. Theodór Francis Birgisson - „Hrósaðu makanum þínum á hverjum einasta degi"
Listen now
Description
Theodór Francis Birgisson kom í mjög áhugavert spjall í Spegilmyndinni á dögunum. Hann hefur sinnt margs konar störfum sem snúa að mannlegum samskiptum í gegnum tíðina og starfaði sem prestur á árunum 1993-2001 og aftur 2007-2009. Hann lagði í preststarfinu mikla áherslu á einstaklings- og pararáðgjöf og í dag starfar hann sem klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni sem er fjölskyldu- og áfallamiðstöð. Þar leggur hann einnig ríka áherslu á para- og hjónabandsráðgjöf. Í þessum þætti ræðir hann hvaða vandamál eru algengust sem koma upp í parasamböndum, hversu mikilvæg nándin er og hvað raunverulega gerir fólk hamingjusamt. Mæli með að þið leggið við hlustir! * Þátturinn er í boði Max Factor - Klaka - og Netgíró
More Episodes
Elín María Björnsdóttir varð landsþekkt þegar hún sá um Brúðkaupsþáttinn Já sem sýndur var á Skjá einum, á sínum tíma. Síðan þá hefur hún fengist við ýmis fjölbreytt verkefni. Ella býr yfir langri alþjóðlegri reynslu í mannauðsmálum, stjórnun og stefnumótun sem og breytingastjórnun og...
Published 11/26/24
Lella Erludóttir er gestur í Spegilmyndinni að þessu sinni. Hún er ACC vottaður markþjálfi, mannauðssérfræðingur, viðskiptafræðingur og markaðskona með fjölbreytta reynslu úr íslensku atvinnulífi. Hún býður upp á áhugaverð námskeið til að aðstoða fólk við að losa sig loddarlíðan (e. Imposter...
Published 11/16/24
Published 11/16/24