Episodes
Published 06/22/22
This episode is in English. Viðmælandinn í dag er Ewa Malinowska sem upprunalega kemur frá Póllandi. Hún hefur búið á Íslandi í 7 ár og hefur búið víða. Núna vinnur Ewa og starfar í Vestmannaeyjum hjá Sea life Trust.
Published 06/22/22
Sanna Magdalena Mörtudóttir er viðmælandi þáttarins. Hún á íslenska móður og tansanískan föður og hefur búið á Íslandi frá 7 ára aldri. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og hún situr nú í borgarstjórn fyrir Sósíalistaflokkinn.
Published 06/08/22
Spjall um Eurovision, Úkrainustríðið, flóttamenn og fordóma.
Published 05/25/22
*Podcast in English* Ewa Marcinek kom til Íslands sem nemi og ætlaði sér bara að vera hér í 3 mánuði, 9 árum seinna er hún enn hér. Ewa er pólskt skáld sem var að gefa út sína fyrstu bók fyrir nokkru. Bókin heitir Ísland Pólerað og er fantagóð! Í bókinni fjallar hún um upplifun sína af því að flytjast til Íslands á einstaklega næman, á köflum harmþrunginn, og húmorískan hátt. Við ræðum við hana um bókina, störf hennar í listageiranum og margt annað. Athugið að viðtalið fer fram á ensku. 
Published 05/11/22
*Podcast in English* Caitlin Emma Jónsson kemur alla leið frá Ástralíu og hefur búið í Eyjum í nokkur ár. Hún elti ástina sína hingað, Guðmund Jónsson, sem var í námi í Ástralíu þegar þau kynntust. Á þeim tíma síðan hún fluttist búferlum yfir hálfan hnöttinn hafa þau Guðmundur gift sig og eignast einn son og er annar væntanlegur í heiminn í byrjun maí. Þau hjónin eru viðmælendur okkar að þessu sinni og segja frá bæði frá upplifun sinni af því að búa í nýju landi. Athugið að viðtalið fer fram...
Published 04/27/22
*Við erum auðvitað að tala um Moniku þegar við töluðum um Joönnu
Published 01/12/22
Jorrit kemur frá Hollandi og hefur búið á Íslandi í 20 ár. Hann kom að hausti til og flutti norður í Aðaldal. Þar starfaði hann í gróðurhúsi og var á þeim tíma eini útlendingurinn hjá fyrirtækinu.
Published 12/29/21
Andri Hugo Runólfsson er borinn og barnfæddur Vestmannaeyingur. Rætur hans liggja djúpt í Eyjum en þær ná líka alla leið til Bandaríkjanna.
Published 11/17/21
I dag hittum við Jórunni Einarsdóttur á zoom og þar var spurningin Af hverju ekki Ísland? þar sem hún er innflytjandi í Danmörku. Hún flutti ásamt fjölskyldunni til Kaupmannahafnar árið 2015 þar sem hún fór í nám. Þau búa þar enn og hún ræðir við okkur um áskoranir sem þau tókust á við þegar þau fluttu til nýs lands. Jórunn rekur nú fyrirtækið Katla - kennsla og ráðgjöf.
Published 11/03/21
Tina Merethe er viðmælandi dagsins. Hún er af dönsk-grænlenskum uppruna en hefur búið á Íslandi í mörg ár. Hennar fyrstu kynni af Íslandi voru þegar hún var fimm ára þegar pabbi hennar var við störf hér í Eyjum árið 1971. Hún flakkaði milli Danmerkur, Grænlands og Íslands þar til hún settist alfarið að í Vestmannaeyjum þar sem hún starfar sem hjúkrunarfræðingur.
Published 10/20/21
Monika Katarzyna flutti til Íslands frá Póllandi árið 1995. Ævintýramennska kom henni til Íslands og ætlaði hún sér að vinna og vera á landinu í 6 mánuði. Síðan eru liðin mörg ár og Monika er hér enn, búin að eignast fjölskyldu, mennta sig og búa sér líf fjarri heimahögunum.
Published 10/06/21
Joanna er forstöðukona Ráðgjafarstofu fyrir innflytjendur, sem m.a. rekur vefsíðuna newiniceland.is  Joanna er upprunalega frá Póllandi og hefur búið á Íslandi lengi. Við ræðum um störf hennar hjá Ráðgjafarstofunni ásamt því að heyra um hennar bakgrunn.
Published 09/22/21
Jasmina er frá Bosníu. Magnað viðtal um stelpu sem upplifði stríð, einelti og heimilisleysi. Jasmina vinnur hjá Reykjavíkurborg í fjölmenningarmálum og frásögnin hennar um lífið hennar og allt sem fylgdi erfiðum tímum er mögnuð. 
Published 09/08/21
Madzia flutti til Ísland frá Póllandi á leikskólaaldri, fór aftur til Póllands og kom svo aftur. Hún segir frá sinni reynslu sem barn. Madzia stundaði nám í Grunnskóla Vestmannaeyja og er núna í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum á vélstjórabraut. 
Published 08/25/21
Eliza Jean Reid forsetafrú og kona af erlendum uppruna kemur í spjallið til okkar. Eliza er frá Kanada og segir okkur frá heimalandinu sínu, aðlögun á Íslandi o.fl.
Published 08/11/21
Evelyn kemur frá Sviss, hefur búið í Reykjavík, á Flúðum og í Vestmannaeyjum. Evelyn starfar sem kennari og er heilluð af Írlandi en kom til Íslands í skiptinám. Hún er klárlega tungumálamanneskja og hefur skemmtilega sögu að segja. 
Published 07/28/21
Jaqueline Cardoso da Silva : Jackie elti ástina til Íslands alla leið frá Brasilíu. Hún byrjaði sinn búskap í Fljótsdal, millilenti í Reykjavík en býr nú í Eyjum.
Published 07/14/21
Marcin Zaborski: Marcin er tvítugur en flutti til Íslands með foreldrum sínum aðeins 7 ára gamall. Hann segir okkur frá uppvexti sínum í Eyjum.
Published 06/30/21
Podcast sem tekið var upp í gegnum Zoom, spjöllum við hana Nichole um hennar sögu ásamt því að fæða um Fjölmenningarsetur 
Published 06/16/21
Mariusz Wanecki: Mariusz kom liðlega tvítugur til Íslands í atvinnuleit. Hann er bróðir Marcins sem við ræddum við síðast.
Published 06/02/21
Marcin Wanecki: Marcin kom ungur til Íslands með foreldrum sínum frá Póllandi. Hann hefur búið hér í Eyjum síðan.
Published 05/19/21
Brya kemur frá Kúrdistan og hefur verið á Íslandi í rúm 4 ár. Hann hefur afrekað margt frá því að hann kom og hefur nú opnað matsölustaðinn Ranya – kebab í Vestmannaeyjum. Hann er aðeins farinn að læra íslensku en valdi að viðtalið færi fram á ensku. 
Published 05/05/21