Episodes
Jæja, nýr vorþáttur af Hlaupalíf Hlaðvarp. Í tilefni hækkandi sólar, forsetakosninga og fæðingarorlofs ákváðum við að rífa fram mækana og spjalla aðeins um hlaupalífið í dag og margt margt fleira. Gleðilegt (hlaupa)sumar! :)
Published 04/26/24
Published 04/26/24
Helen Ólafsdóttir hefur náð mjög góðum árangri á sviði langhlaupa og í þríþraut og er ein af þessum fyrirmyndum sem hefur náð mjög langt þrátt fyrir að hafa byrjað “seint” ef svo má að orði komast. Það geislar af henni þessi þolíþróttaljómi sem þekkist svo vel á íþróttafólki. Hún hefur fært sig yfir í þríþraut sökum meiðsla og á stuttum tíma náð mjög miklum árangri. Helen segir okkur frá sínu hlaupa- og íþróttalífi, framtíðarmarkmiðum, bataferli eftir höfuðhögg o.fl. o.fl.
Published 04/07/23
Jæja loksins erum við í Hlaupalíf búin að dusta rykið af hlaðvarpsgræjunum og þá var enginn betri til að mæta í settið en hlaupakóngurinn Búi Steinn Kárason.  Búi er vel kunnugur í hlaupasamfélaginu enda tekið þátt í hinum ýmsum stórhlaupum. Við höfum séð hann keppa í hlaupum sem spanna allt frá 3000m upp í 161 km og oftar en ekki sigrað þessi hlaup og verið á frábærum tímum. En hver er Búi, hvernig varð hann svona feyki góður hlaupari og hvað er á döfinni hjá honum? Við komumst að því í...
Published 02/21/23
Hlaupalíf og hlaupalífið er aftur mætt með flúnkunýjan þátt!
Published 11/11/22
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf brugðum við aðeins út af vananum og heimsóttum höfuðborgina á suðausturlandi: Höfn í Hornafirði. Við hittum þar fyrir Helgu Árnadóttur, hlaupafrumkvöðul og hlaupaþjálfara, sem sagði okkur frá Hlaupalífinu á Höfn og skyggðumst aðeins betur inn í heim hlaupara á landsyggðinni og margt margt fleira!
Published 05/26/22
Langþráður NÝR þáttur hjá okkur í Hlaupalíf. Vorið er komið, engar appelsínugular viðvaranir, hlaupasumarið að hefjast og allir hlauparar (og aðrir) peppaðir eftir því. Í þessum þætti förum aðeins yfir hlaupalífið okkar í dag, áskoranir í persónulega lífinu undanfarin misseri og spáum aðeins í hlaupasumrinu, hvað eru skemmtilegustu hlaupabrautirnar o.m.fl. TAKK fyrir að hlusta! :)
Published 05/08/22
Afsakið hlé og þáttur númer 40 - TAKK. Eins og svo margir aðrir jarðarbúar þá þurftum við að slá lífinu á frest þegar við smituðumst af Covid-19. Stutt spjall okkar á milli í Hlaupalíf um lífið í einangrun, að horfa á björtu hliðarnar og að sjálfsögðu hlaupalífið eftir einangrun. 
Published 12/05/21
Nú er keppnistímabilinu að ljúka hjá mörgun hlaupurum og nýtt tímabil að hefjast. Hvernig er best að byggja hlaupatímabilið upp með réttum hætti fyrir næstu hlaup sem við erum að stefna að? Og AF HVERJU er þetta svona mikilvægt?   Allt þetta og auðvitað miklu meira til  (svo gaman að tala um hlaup, er það ekki?) í þessu úber góða spjalli við hlaupafrömuðinn Arnar Pétursson. ENJOY!  Þátturinn er í boði, Serrano, verslunarinnar Sportvörur og www.sjalfsbetrun.is
Published 10/24/21
Í 38# þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við fjölmiðlamanninn, frambjóðandann en fyrst og fremst HLAUPARANN Sigmar Guðmundsson til okkar í settið. Við í Hlaupalíf höfum alltaf haft áhuga á að heyra hvernig fólk vinnur úr alcoholisma eða öðrum fíknisjúkdómi með hlaupum og hvernig þau geta stuðlað að breyttum lífsstíl með einum eða öðrum hætti. Slíkt hefur svo sannarlega hefur gerst hjá Sigmari sem er orðinn dolfallinn utanvegahlaupari. Kannski getur þessi saga hjálpað öðrum í sambærilegum...
Published 09/15/21
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp (#37) fengum við enga aðra en Laugavegs-sigurvegarann Andreu Kolbeindóttur í settið og fórum yfir mál málanna: hvernig hleypur maður Laugaveginn á 4:55 og brýtur þar með múr múranna; 5 klst-múrinn! Þrátt fyrir ungan aldur á Andrea nú þegar magnaðan hlaupaferil í ýmsum vegalengdum allt frá brautarhlaupum að últra hlaupum, sem gerir hana að þeirri einstöku hlaupakonu sem hún er. Við fórum yfir allt þetta og meira til, m.a hvernig framtíðin lítur út hjá...
Published 08/04/21
Hver er Baldvin Þór Magnússon? Jú, ekki nema þrefaldur Íslandsmethafi og einn allra besti hlaupari okkar Íslendinga. Við í Hlaupalíf tókum strangheiðarlegt viðtal við þennan unga og efnilega hlaupara sem hefur vakið talsverða athygli í hlaupaheiminum. Baldvin er hægt og rólega byrjaður að slá nokkur Íslandsmet í hlaupum og er jafnframt að gera stórgóða hluti með háskólaliðinu sínu í Bandaríkjunum, sem er sami skóli og Hlynur Andrésson var í. Skemmtilegt. Ef þú vilt kynnast einum besta...
Published 07/02/21
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fengum við Ragnheiði Sveinbjörnsdóttur í settið en hún sigraði 100 mílna hlaupið í Hengil-Ultra í byrjun júní sl. Hvernig er að keppa í 161 km hlaupi, hvernig æfir maður sig fyrir svona langt hlaup og hvernig var að takast á við afar krefjandi aðstæður sem komu upp í hlaupinu? Allt þetta og meira til förum við yfir með Ragnheiði sem segir okkur frá þessari ofur þrekraun.
Published 06/13/21
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fórum við eilítið inn á við. Það er ýmislegt búið að gerast í lífi okkar og ákveðið sorgarferli frá seinasta þætti sem við förum yfir og ræðum hvernig hlaup og önnur hreyfing hefur hjálpað okkur við eftirköst á sorginni. Ræðum ekki bara hlaup, heldur einnig aðra þætti tengt hreyfingu. Förum einnig yfir ákveðna tilraun sem við höfum verið að prófa tengt hlaupum sem tengist atlögu Vilhjálms að fyrsta maraþonhlaupinu í lok sumar! 
Published 05/16/21
Í þætti dagsins fengum við hina kornungu hlaupastjörnu Guðbjörgu Jónu, sem er einn efnilegasti frjálsíþróttamaður okkar Íslendinga í dag. Það vita það kannski ekki allir, en Guðbjörg er ekki bara margfaldur íslandsmethafi og boðberi frjálsíþróttarinnar hér á landi, heldur líka heimsmethafi. Komum nánar að því í viðtalinu! Hún hefur einnig verið áberandi í fjölmiðlum að undanförnu og stendur fyrir málstað frjálsíþróttafólks hér á landi. Hér kemur Guðbjörg Jóna og saga hennar, GJÖRIÐISVOVEL.
Published 03/19/21
Nýjasti þáttur Hlaupalíf Hlaðvarp #32 er tileinkaður ofþjálfun. Af hverju ofþjálfun? Jú við höfum heyrt af því að hlauparar hafa í gegnum tíðina lent í einkennum vegna æfinga sem gætu bent til ofþjálfunar. Til að ræða þetta atriði betur og fá nánari útskýringar á viðfangsefninu fengum við til okkar í settið Erling Jóhannsson prófessor í íþrótta- og heilsufræði á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Við ræddum þessi málefni í þaula ásamt feril Erlings en Erlingur var afreksmaður í íþróttum og á...
Published 02/21/21
Í þætti dagsins sem  tileinkaður er VEGANÚAR  fengum við sjálfskipaða veganklappstýru Íslands, enga aðra en Guðrúnu Sóleyju Gestsdóttur, fjölmiðladrottningu. Við fórum yfir víðan völl, hlaupaferil og hlaupalífsviðhorf Guðrúnar, vegan og plant based umræður og tengslin þar við hlaup. Fyrst og fremst djúpt og einlægt, en í senn bráðskemmtillegt viðtal við hressa og skemmtilega manneskju. Spennandi viðtal fyrir forvitið fólk um mataræði og lífið almennt!
Published 01/31/21
Í 30. þætti af Hlaupalíf fjöllum við um hlaup að vetri til og öryggi. Sífellt fleiri og fleiri vilja hlaupa allan ársins hring, sem er að sjálfsögðu hið besta mál ef vari er hafður á.  Slysin gera ekki boð á undan sér og hægt er að bjarga mannslífum með fyrirbyggjandi aðgerðum. Það koma reglulega  fréttir af björgunaraðgerðum og margir hafa farist í hlíðum Esjunnar þrátt fyrir mikla reynslu á fjöllum.  Okkur langar því að fara ítarlega yfir öryggisatriði í utanvegahlaupum að vetri til og...
Published 12/22/20
Gestur þáttarins er stór. Mjög stór, en samt pínulítil. Þetta er engin önnur en fremsta afrekskona Íslendinga í hlaupum, Martha Ernstsdóttir ofurhlaupari. Við förum meðal annars yfir viðburðaríkan feril Mörthu, Ólympíuleikana 2000 í Sidney, fjölmörgu Íslandsmetin hennar en fyrst og fremst fáum við að kynnast persónunni sem hún hefur að geyma og fallegu lífsviðhorfi hennar. Þetta er alveg sannkallað drottningarviðtal við litríka persónu sem ENGINN má missa af. 
Published 11/15/20
Það kannast eflaust flestir við heimasíðuna www.hlaup.is. Þar getur fólk flett upp hlaupadagskrá, myndum, pistlum og almennum fróðleik o.fl. o.fl. Nýverið var ný síða sett á laggirnar - virkilega flott framtak - og okkur langaði aðeins að forvitnast um Torfa Leifsson, sem er svona “pabbi” hlaup.is. Hvað er það sem drífur Torfa áfram og fær hann til að halda áfram að vinna alla þessa vinnu fyrir okkur - og hver er Torfi? Þetta eru spurningar sem eflaust hafa brunnið á flestum Íslendingum til...
Published 10/26/20
Barneignir og hlaup. Förum yfir nokkur grunnatriði í tenglsum við barneignir og hlaup og hvert maður getur leitað með almenn ráð bæði hvað varðar hreyfingu á meðgöngunni sjálfri og eftir barnsburð. Ræðum við Írisi Önnu Skúladóttur sem hefur gengið með fjögur börn á seinustu átta árum og púslar nú fjölskyldulífi, atvinnulífi og íþróttaferli. Hún hefur verið með fremstu hlaupakonum Íslands um árabil og deilir sinni reynslu af því að hreyfa sig í gegnum meðgöngur og koma sér aftur af stað og...
Published 10/09/20
Hlaupalíf hefur loksins skriðið úr sumardvalanum! Í þessum þætti fjallar Vilhjálmur Þór um sína eigin baráttu við langvinn meiðsli sem komu vegna hlaupa. Í þættinum rekjum við meiðslasöguna og hvernig hann fer (vonandi) með rétt hugarfar og langtímasýn í gegnum hæðir og lægðir sem fylgja langtímameiðslum. Fyrr á þessu ári tók hann ákvörðun sem reynist flestum hlaupurum erfið; að leggja alveg niður hlaup á meðan hann var að einbeita sér að því að ná að líða betur í eigin líkama og áhugavert að...
Published 09/14/20
Í nýbökuðum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við landsliðs- og ofurhlauparann Guðna Pál Pálsson í settið sem ræddi við okkur um mál málanna þessa dagana: LAUGAVEGINN. Hvernig er best að undirbúa sig, hvaða búnaður hentar og hentar ekki. Næring, endurheimt, algeng mistök og andlegi þátturinn eru svo allt málefni sem við fórum yfir með Guðna sem hlaupið hefur Laugaveginn 4x og fyrir Íslands hönd á HM í fjallahlaupum nokkrum sinnum og því vel til fallinn að ræða þessi mál við  okkur!
Published 07/10/20
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fengum við þríþrautardrottninguna Guðlaugu Eddu til okkar í bráðskemmtilegt  viðtal. Guðlaug er einn fremsti þríþrautariðkandi okkar Íslendinga og var (og er) afar nálægt því að komast á Ólympíuleikana 2021 í Tokyo. Guðlaug leggur gríðarlegan metnað og vinnu í íþróttina og uppsker eftir því. Það var virkilega gaman að taka viðtal við Guðlaugu, sjálfstraustið geislar af henni og áhugi hennar á íþróttum almennt er svo sannarlega smitandi sem allir geta tekið til...
Published 06/21/20
Í GLÆnýjum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fórum við heldur betur á stúfana og rannsökuðum hvaða fjöll og tinda eru heppileg fyrir okkur hlaupara að hlaupa á höfuðborgarsvæðinu. Það er fátt betra en að láta hugann reika í fjallahlaupi og/eða fjallagöngu og njóta sín í náttúrunni og vildum við kanna hvaða leiðir væru þar í boði. Þá er það umtalað að slíkar fjallaæfingar eru þrælöflugar , sérstaklega fyrir STYRKINN. Endilega njótið og fáið góðar hugmyndir fyrir nýju fjallahlaupi í nágrenni...
Published 06/06/20