#44 Búi Steinn Kárason
Listen now
Description
Jæja loksins erum við í Hlaupalíf búin að dusta rykið af hlaðvarpsgræjunum og þá var enginn betri til að mæta í settið en hlaupakóngurinn Búi Steinn Kárason.  Búi er vel kunnugur í hlaupasamfélaginu enda tekið þátt í hinum ýmsum stórhlaupum. Við höfum séð hann keppa í hlaupum sem spanna allt frá 3000m upp í 161 km og oftar en ekki sigrað þessi hlaup og verið á frábærum tímum. En hver er Búi, hvernig varð hann svona feyki góður hlaupari og hvað er á döfinni hjá honum? Við komumst að því í þessu viðtali ásamt fjölmörgu öðru enda áttum við virkilega gott og einlægt spjall við Búa sem enginn hlaupaunnandi má missa af. 
More Episodes
Jæja, nýr vorþáttur af Hlaupalíf Hlaðvarp. Í tilefni hækkandi sólar, forsetakosninga og fæðingarorlofs ákváðum við að rífa fram mækana og spjalla aðeins um hlaupalífið í dag og margt margt fleira. Gleðilegt (hlaupa)sumar! :)
Published 04/26/24
Published 04/26/24
Helen Ólafsdóttir hefur náð mjög góðum árangri á sviði langhlaupa og í þríþraut og er ein af þessum fyrirmyndum sem hefur náð mjög langt þrátt fyrir að hafa byrjað “seint” ef svo má að orði komast. Það geislar af henni þessi þolíþróttaljómi sem þekkist svo vel á íþróttafólki. Hún hefur fært sig...
Published 04/07/23