Episodes
Þann 26. Janúar árið 2013 mætti Elisa Lam, 21 árs gamall nemi, til Los Angeles eftir að hafa ferðast einsömul frá sínum heimabæ í Kanada. Hún lofaði fjölskyldu sinni að láta heyra í sér daglega en einungis nokkrum dögum síðar braut hún það loforð.
Published 02/25/20
Á aðfangadagskvöldi árið 1945 var Sodder fjölskyldan að gera sig klára fyrir svefninn. Allir voru spenntir fyrir jóladagsmorgni og að loknum leik eftir aðeins lengri vöku en vanalega lögðust börnin til hvílu. Þessi jólanótt yrði þó sú síðasta sem fjölskyldan öll myndi eyða saman.
Published 01/08/20
Að kvöldi 19. maí 2008 var Glenn Hollinshead á gangi með félaga sínum þegar þeir hitta fyrir konu sem var að leita að tvíburasystur sinni sem lent hafði á sjúkrahúsi. Hún spurði hvort þeir vissu um gistihús í nágrenninu en Glenn sá aumur á konunni og bauð henni að koma heim til sín. Héldu þau þrjú til Glenn en félagi Glenn fór heim um kvöldið en konan þáði gistinguna. Enginn vissi þó að þessi góðmennska Glenn ætti eftir að verða hans hinsta verk.
Published 12/12/19
Þann 23. janúar árið 1959 hélt Yuri Yudin af stað í ævintýraför ásamt vinum sínum að Otorte fjalli í Rússlandi. Tilgangur ferðarinnar var að sigrast á þessari erfiðu leið og vinna sér þannig inn hæstu gráðu í fjallgöngum. Þegar fimm dagar voru liðnir af ferðinni neyddistt Yuri hins vegar til að halda heim á leið vegna veikinda en það reyndist hans mesta gæfa.
Published 11/27/19
21. mars 1998 hélt Bradley fjölskyldan af stað í siglingu á skemmtiferðaskipinu Rhapsody of the Seas um karabískahafið. Að kvöldi 23. mars skemmti fjölskyldan sér saman en þegar foreldrarnir héldu til hvílu ákváðu Amy og bróðir hennar að halda áfram að skemmta sér. Þau lögðust á sólbekkina fyrir utan klefann sinn og spjölluðu saman þar til Brad ákvað að fara að sofa, brad kvaddi systur sína og sagði henni að hann elskaði hana en þau grunaði ekki að þau orðaskipti
Published 11/19/19
Þann 13. febrúar 2017 áttu vinkonurnar Abigail Williams og Liberty German frídag og fóru í göngu um gamla lestarteina sem voru vinsælt svæði til útvistar. Þær héldu á vit ævintýranna en engan grunaði að þetta yrði þeirra hinsta kveðja.
Published 11/10/19
Rétt fyrir miðnætti þann 8. ágúst 2013 ók Brandon Lawson, 26 ára gamall fjögurra barna faðir, af stað frá heimilinu sínu en varð bensínslaus á leiðinni og hringir í bróður sinn eftir aðstoð en þeir áttu hins vegar aldrei eftir að hittast aftur.
Published 10/25/19
Þann 8. október 2009 hélt Jamison fjölskyldan, af stað akandi tæplega 50 kílómetra leið upp að hinum svokölluðu Sans Bois fjöllum nálægt Red Oak í Oklahoma. Þau skiluðu sér aldrei heim aftur.
Published 10/17/19
Tvær vinkonur halda í ævintýra- og sjálfboðaliðaferð til Panama í Suður-Ameríku en skila sér aldrei heim
Published 10/11/19
Það var í lok júlí árið 2009 sem Diane Schuler fór ásamt fjölskyldunni sinni í frí yfir helgina á tjaldsvæði og tók litlu frænkur sínar með sér. Á heimleiðinni upphófst undarleg atburðarrás sem endaði í martröð.
Published 10/03/19