Rauða borðið - Sumarþáttur um heimsenda: Haukur Már Helgason, Þuríður Jónsdóttir, Pétur Gunnarsson, Guðmundur Auðunsson, Einar Már Jónsson og Ragnheiður Gyðu Jónsdóttir
Description
Miðvikudagurinn 3. júlí:
Sumarþáttur um heimsenda
Oddný Eir Ævarsdóttir er gestastjórnandi að þessu sinni ásamt Gunnar Smára Egilssyni. Þau fá heimsókn: Haukur Már Helgason rithöfundur, Þuríður Jónsdóttir tónskáld og Pétur Gunnarsson rithöfundur koma og ræða heim á heljarþröm, stríð, niðurbrot lýðræðis og hvernig heimsendir kann að líta út. Síðan heyrum við um kosningar: Guðmundur Auðunsson hagfræðingur segir okkur frá kosningum í Bretlandi á morgun og Einar Már Jónsson sagnfræðingur frá kosningum í Frakklandi um helgina. Í lokin ræðir Gunnar Smári við Ragnheiði Gyðu Jónsdóttur um Ríkisútvarpið.
Fimmtudagurinn 3. október
Líbanon, hægrið, samkeppni og sagnfræði
Við byrjum á Radíó Gaza: María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp ræðir um ástandið í Mið-Austurlöndum við Margréti Marinósdóttur alþjóðastjórnmálafræðing og Guðrúnu Margréti Guðmundsdóttur mannfræðing sem báðar þekkja þennan...
Published 10/03/24
Miðvikudagurinn 2. október
Krakkaþing, elítur, eftirlaunafólk, búddistar og Einar Sigurður
Krakkaþing Fíusólar hefur skilað niðurstöðum sínum. Tinna Sigfinnsdóttir framhaldsskólanemi og Guðmundur Brynjar Bergsson grunnskólanemi segja okkur frá þeim ásamt Þórunni Örnu Kristjánsdóttur...
Published 10/02/24