53. Vilma Ýr Árnadóttir - „Vilma! Ekki horfa í baksýnisspegilinn, haltu áfram“
Listen now
Description
Vilma Ýr Árnadóttir, eigandi Vilma Home, er gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Í þessum þætti ræðir hún opinskátt um líf sitt. Meðal annars um upphafið á vefversluninni Vilma Home og frægu drykkjarbrúsana. Hvernig hún er stöðugt að stíga út fyrir þægindarammann en þó með húmorinn í forgrunni. Gagnrýni og stuðning á samfélagsmiðlunum ásamt því hvernig innsæið öskraði á hana að taka stórt skref og segja starfi sínu lausu eftir 19 ár. Hún ræðir dásamlega brúðkaupsdaginn sinn, kvennaferðir og margt annað áhugavert og skemmtilegt, rétt eins og hún er sjálf.  * Þessi þáttur er í boði Netgíró, Max Factor og Klaka.    
More Episodes
Lella Erludóttir er gestur í Spegilmyndinni að þessu sinni. Hún er ACC vottaður markþjálfi, mannauðssérfræðingur, viðskiptafræðingur og markaðskona með fjölbreytta reynslu úr íslensku atvinnulífi. Hún býður upp á áhugaverð námskeið til að aðstoða fólk við að losa sig loddarlíðan (e. Imposter...
Published 11/16/24
Published 11/16/24
Theodór Francis Birgisson kom í mjög áhugavert spjall í Spegilmyndinni á dögunum. Hann hefur sinnt margs konar störfum sem snúa að mannlegum samskiptum í gegnum tíðina og starfaði sem prestur á árunum 1993-2001 og aftur 2007-2009. Hann lagði í preststarfinu mikla áherslu á einstaklings- og...
Published 10/27/24