Episodes
Á þriðjudaginn komst áfrýjunardómstóll í Washington að þeirri niðurstöðu að höfnun SEC á umsókn Grayscale hefði verið ólögmæt. Greinendur markaðarins reikna fastlega með því að niðurstaðan muni hafa þau áhrif í för með sér að senn verði fjölmargar umsóknir um Bitcoin kauphallarsjóði samþykktar. Í sögulegu samhengi hefur tilkoma slíkra sjóða haft mjög jákvæð áhrif á verðhegðun undirliggjandi eignar. Um þetta og margt fleira er fjallað í þessu fréttahorni.
Published 08/31/23
Hinn 15. júlí síðastliðinn féll tímamótadómur í máli SEC gegn Ripple. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að ekki bæri að líta á XRP sem verðbréf. Rafmyntamarkaðir hækkuðu verulega við tíðindin enda vonir bundnar við það að niðurstaðan verði heimfærð yfir á aðrar rafmyntir. Einnig er stuttlega vikið að efnahagsmálum almennt, verðbólgu og stýrivöxtum í Bandaríkjunum og fleira.
Published 08/01/23
Blackrock, stærsti eignastýringaraðili í heimi, hefur sótt um að stofna Bitcoin kauphallarsjóð. Tveir aðrir eignastýringaraðilar hafa nú gert slíkt hið sama. Hvað nákvæmlega er kauphallarsjóður og hvaða áhrif hafa slíkir sjóðir á verðhegðun í sögulegu samhengi? Um þetta og fleira er fjallað í fréttahorni dagsins.
Published 06/23/23
Í fréttahorni dagsins er fjallað um lögsóknir bandaríska verðbréfaeftirlitsins (SEC) á hendur rafmyntakauphöllunum Binance og Coinbase. Farið er yfir málsgrundvöllinn, lykilhugtök skilgreind og fjallað er um líklegar afleiðingar lögsóknanna á rafmyntamarkaðinn
Published 06/09/23
Í þessu fréttahorni er fjallað um hvernig fjársterkir aðilar eru að kaupa upp og safna Bitcoin til lengri tíma. Einnig er fjallað um líklegar afleiðingar fyrirhugaðrar hækkunar á skuldaþaki bandaríska ríkisins.
Published 05/26/23
Í þessu fréttahorni fjallar Kjartan um óvenjulegt álag á Bitcoin bálkakeðjunni undanfarið sem hefur leitt til aukins kostnaðar færslugjalda á keðjunni. Einnig er fjallað um grundvallaratriði Bitcoin bálkakeðjunnar í stuttu og kjarnyrtu máli.
Published 05/11/23
Nú á dögunum féll hinn stóri First Republic Bank í Bandaríkjunum, en þrátt fyrir það heldur gengi Bitcoin áfram á góðri siglingu. Stýrivextir í Bandaríkjunum hækkuðu um 25 punkta í gær, 3. maí 2023. Er greiðsluþrot bandaríska ríkisins yfirvofandi? Er meiri áhætta að eiga ekkert Bitcoin heldur en að eiga a.m.k. smá Bitcoin? Um þetta og fleira er fjallað um í þessu fréttahorni.
Published 05/04/23
Í þessu fréttahorni er sjónum beint að svonefndri Shanghai uppfærslu hjá Ethereum sem beðið hefur verið eftir með talsverðri eftirvæntingu, en þá loksins verður hægt að taka út og ráðstafa læstu ETH á bálkakeðjunni. Einnig er fjallað um hugtökin proof of work og proof of stake. Við hjá Myntkaupum erum mjög jákvæðir gagnvart Shanghai uppfærslunni og könnum nú bestu leiðir til þess að viðskiptavinir Myntkaupa geti notið góðs af.
Published 04/05/23
Í þessu fréttahorni er fjallað um áframhaldandi vandræði í bankakerfi heimsins, samhliða allverulegri hækkun á gengi Bitcoin. Er Bitcoin eina leiðin til þess að verja sig gagnvart kerfislægum vanda fjármálakerfisins? Öll augu beinast nú að viðbrögðum Seðlabanka Bandaríkjanna. Um þetta og fleira er fjallað í þessu fréttahorni Myntkaupa.
Published 03/20/23
Óhætt er að segja að atburðarás síðustu daga hafi valdið titringi á fjármálamörkuðum, en þrír bankar, Silvergate Capital, Silicon Valley Bank og New York Signature Bank, hafa allir fallið vestanhafs. Yfirvöld þar í landi hafa stigið inn í og tryggt allar innstæður bankanna að fullu. Þessir bankar hafa verið áberandi fyrir að þjónusta fyrirtæki í rafmyntageiranum, meðal annars Circle sem heldur utan um USDC.
Hvaða áhrif mun þetta koma til með að hafa? Af hverju hefur rafmyntamarkaðurinn rokið...
Published 03/13/23
Í þessum fyrsta þætti af Hlaðvarpi Myntkaupa fengum við góðan gest í heimsókn. Þúsundþjalasmiðurinn Elmar Johnson hefur farið um víðan völl, hann er læknir að mennt og hefur starfað sem slíkur en hann var einnig einn af stofnendum ferðaþjónustufyrirtækisins Guide to Iceland. Síðustu ár hafa fjárfestingar í rafmyntum og öðrum eignarflokkum átt hug hans allan en í þessum þætti ræðir Elmar við Kjartan um tæknigreiningu (e. technical analysis) og hvernig á að nota það tól til að greina markaði....
Published 02/28/23