Flugucastið #2 - Attenborough, síldin og fjöldamorðið
Description
Veiðikonur og veiðimenn.
Til lukku! Veiðitímabilið er byrjað og ekki nóg með það. Annar þátturinn af Flugucastinu er kominn í loftið og í honum fengum við engan smá gest. Eggert Skúlason.
Eggert fer um víðan völl, allt frá stórlöxum niður í smæstu síldir. Við ræðum líka um Sporðaköst og fáum sögur sem gerðust á bakvið tjöldin í þáttunum.
Við flugucastarar óskum ykkur góðrar skemmtunar.
Jæja kæru kastarar. Fyrst við fögnuðum okkar fyrsta starfsári á dögunum og gátum ekkert gert fyrir ykkur og ástandið er eins og það er, reynum við okkar allra besta til að stytta ykkur stundirnar og bjóða ykkur upp á smá nýjung.
Sögustund. Ef þið eruð sátt með þetta þætti okkur gaman að heyra frá...
Published 04/07/20
Nils Folmer Jörgensen er fyrir löngu orðinn þekktur meðal veiðimanna fyrir sérstakt lag sitt á því að veiða stóra laxa hvar sem hann kemur. Allt frá barnsaldri hefur Nils verið límdur við flugustöngina og ferðast heimshorna á milli í leit sinni að lónbúanum. Við förum yfir alla söguna og snertum...
Published 04/02/20