Flugucastið #15 - Snæfellsnes, SVFR, veiða og sleppa?
Listen now
Description
Kæru kastarar! Farið er yfir stóru málin í þessum þætti. Allt frá nærri gjaldþrota stangaveiðifélagi til SVFR eins og það stendur í dag. Bjarni Júlíusson veiðimaður og fyrrverandi formaður SVFR fer yfir æskuna á Snæfellsnesi, leiðsögnina, ástina og formennskuna. Svo er það mál málanna. Veiða og sleppa? Vegna tæknilegra örðugleika var ekki hægt að setja veiðilagið sem Bjarni valdi í lok þáttar og biðjum við ykkur, og hann, velvirðingar á því. Við vitum samt að þið þekkið öll lagið og leyfið því að óma í höfði ykkar. Skál!
More Episodes
Jæja kæru kastarar. Fyrst við fögnuðum okkar fyrsta starfsári á dögunum og gátum ekkert gert fyrir ykkur og ástandið er eins og það er, reynum við okkar allra besta til að stytta ykkur stundirnar og bjóða ykkur upp á smá nýjung. Sögustund. Ef þið eruð sátt með þetta þætti okkur gaman að heyra frá...
Published 04/07/20
Published 04/07/20
Nils Folmer Jörgensen er fyrir löngu orðinn þekktur meðal veiðimanna fyrir sérstakt lag sitt á því að veiða stóra laxa hvar sem hann kemur. Allt frá barnsaldri hefur Nils verið límdur við flugustöngina og ferðast heimshorna á milli í leit sinni að lónbúanum. Við förum yfir alla söguna og snertum...
Published 04/02/20