Description
Kæru kastarar. Jón Þór Júlíusson, framkvæmdastjóri Hreggnasa, mætti til okkar í ham og í HAM-bol í fyrsta þátt vetrarins. Jón fer með okkur um víðan völl, veltir steinum og stingur á kýlum. Hann er yngsti leigutaki að laxveiðiá á Íslandi. Hann er HAM, þið eruð HAM, við erum öll HAM. Njótið!
Minnum á live flugucast á Session Craft Bar 31. október kl. 20. Lofum rokkstjörnum í stólana.
Jæja kæru kastarar. Fyrst við fögnuðum okkar fyrsta starfsári á dögunum og gátum ekkert gert fyrir ykkur og ástandið er eins og það er, reynum við okkar allra besta til að stytta ykkur stundirnar og bjóða ykkur upp á smá nýjung.
Sögustund. Ef þið eruð sátt með þetta þætti okkur gaman að heyra frá...
Published 04/07/20
Nils Folmer Jörgensen er fyrir löngu orðinn þekktur meðal veiðimanna fyrir sérstakt lag sitt á því að veiða stóra laxa hvar sem hann kemur. Allt frá barnsaldri hefur Nils verið límdur við flugustöngina og ferðast heimshorna á milli í leit sinni að lónbúanum. Við förum yfir alla söguna og snertum...
Published 04/02/20