Orri Harðar og Drög að heimkomu
Listen now
Description
Í Rokklandi dagsins er Orri Harðarson fyrirferðarmestur, en núna 1. október s.l. voru liðin heil 30 ár frá Því að fyrsta platan hans, Drög að heimkomu, kom út. Orri varð með útgáfu þessarar plötur yngstur Íslendinga til að gera sólóplötu með eigin lögum og hann var útnefndur "Nýliði ársins" á Íslensku tónlistarverðlaununum þegar þau voru afhent í fyrsta sinn, 1994. Orri sem var útnefndur bæjarlistamaður á Akureyri 2017 hefur sent frá sér 5 stórar plötur, skrifað skáldsögur og aðrar bækur, spilað með hljómsveitum, stjórnað uppötum á fjölmörgum plötum og svo framvegis. Orri heimsótti Rokkland á Akranes í vikunni og við spjölluðum saman um heima og geima en fyrst og fermst um þessa fyrstu plötu hans. Unglingahljómsveitirnar Rolling Stones og Teengae Fanclub koma líka við í þætti dagsins - sem má svo alltaf heyra á ruv.is og í Rúv spilaranum. Hvað ætti Rúv spilarinn annars að heita? Þessi sem við erum með í símanum...
More Episodes
Published 05/05/24
Published 04/28/24