Episodes
Verið velkomin/nn í þáttinn FYRIRMYNDIR í tali og tónum. Í þáttunum fáum við til liðs við okkur tónlistarfólk sem spjallar við okkur og svara nokkrum spurningum m.a um jákvæðni, vináttu, sjálfsmynd o.fl. segja okkur sögur af sér og spila og syngja sín uppáhaldslög. Gestur : Silja Rós Ragnarsdóttir. www.tonasmidjan.is
Published 03/23/21
Verið velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs. Í þessum áttunda þætti fær Þórdís Jóna til sín magnaða konu frá þýskalandi hana Halldóru Skúladóttur í settið til að ræða þær aðferðir sem hún er að vinna með til að hjálpa fólki að styðja við og styrkja sjálfið, dáleiðslu, NLP og fleira. Í þessu áhugaverða viðtali fara þær víða og m.a. tala um heilan sem dramadrottningu og hvernig gott er að skilja og eiga...
Published 03/23/21
Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. Á hverjum sunnudegi munum við fræðast saman um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama. Í þessum sjötta þætti deilir Íris með okkur eigin hugrenningum og er umfjöllunarefni þáttarins samkennd í eigin garð. þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir Upphafs- og lokastef: Ágúst Þór...
Published 03/21/21
Verið velkomin/nn í þáttinn "Við erum einstök" Í þessum þáttum okkar segir hún Ingibjörg Þengilsdóttir ráðgjafi okkur sögur sínar í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið.   „Í þessum áttunda þætti fjallar hún um sannleikann , já sannleikann sinn , en hvað er sannleikur ? Sannleikurinn er tvennt í senn: Annarsvegar sá hversdagslegi eiginleiki þess sem við höldum fram, trúum og förum eftir og hinsvegar óræður og næstum því yfirnáttúrlegur hlutur: samsvörun þess sem sagt er við það sem...
Published 03/19/21
Verið Velkomin/nn í Verkfærakassann Gestur 25. Þáttar Verkfærakassans er Gígja Árnadóttir fyrrverandi náms- og starfsráðgjafi. Gígja sem er 78 ára gömul segir okkur frá áhugaverðri ævi sinni á lifandi og skemmtilegan og einlægan hátt eins og henni einnig er lagið. Hún ræðir m.a. hvernig Einar á Einarsstöðum læknaði heilaæxlið hennar á einni nóttu, ákvörðun sína að fara í nám til Kanada nýfráskilin um fimmtugt, kennsluferilinn þar sem hún var m.a. einn af fyrstu tölvukennurum á Íslandi á...
Published 03/18/21
Verið velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs. Í þessum sjöunda þætti fær Þórdís Jóna til sín frábæran gest hana Söndru Björg Helgadóttur til að ræða meðal annars um SMART formúluna til markmiðasetningar og fleira skemmtilegt og fræðandi. Mikilvægi þess að eiga sér drauma, þekkja sjálfan sig og árangursbrekkuna mögnuðu. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum...
Published 03/16/21
Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. Á hverjum sunnudegi munum við fræðast saman um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama. Í þættinum í dag fær pistill Ágústu Óskar Óskarsdóttur “Litróf tilfinninga“ rödd en Ágústa er lærður fjölskyldumeðferðarfræðingur, með B.A gráðu í félagsráðgjöf auk þess að vera lærður dáleiðari...
Published 03/14/21
Verið velkomin/nn í Verkfærakassann Í þessum 24. Þætti bregður Hrabbý sér hinum megin við borðið og fær til sín gestastjórnanda hana Ölmu Hrönn englareikimeistari. Í þættinum fá hlustendur að kynnast henni Hrabbý stjórnanda Verkfærakassans aðeins betur þar sem hún spreytir sig á hinum ýmsu spurningum sem hún hefur lagt fyrir viðmælendur þáttarins hingað til. Þær stöllur ræða lífið og tilveruna þar sem Hrabbý segir m.a. frá sjálfri sér, sínu andlegu ferðalagi og ýmsum lærdómi sem hún hefur...
Published 03/11/21
Verið velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs. Í þessum 6. þætti ætlar Þórdís Jóna að velta fyrir sér mikilvægi gilda. Eru gildi mikilvæg, hvernig og afhverju skipta þau okkur máli ? Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís...
Published 03/09/21
Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. Á hverjum sunnudegi munum við fræðast saman um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama. Í þættinum í dag fær grein Önnu Lóu Ólafsdóttur „Mætum kvíðanum“ rödd. Anna Lóa er menntaður náms- og starfsráðgjafi, markþjálfi og jafnframt stofnandi Hamingjuhornsins sem hægt er að finna á...
Published 03/07/21
Verið velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs. Í þessum fimmta þætti fær Þórdís Jóna ungan atorkusamann mann og góða fyrirmynd hann Nökkva Fjalar Orrasson í spjall um sjálfsmynd drengja og þau velta jafnframt fyrir sér mikilvægi sjálfsmyndar og uppbyggingu hennar. Í spjalli þáttarins er farið víða og m.a. yfir það hversu mikilvægt það er að eiga góð og innihaldsrík samtöl við drengi jafnt sem stúlkur og...
Published 03/02/21
Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. Á hverjum sunnudegi munum við fræðast saman um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama. Í þættinum í dag fær grein Önnu Lóu Ólafsdóttur „Bognum - brotnum ekki“ rödd. Anna Lóa er menntaður náms- og starfsráðgjafi, markþjálfi og jafnframt stofnandi Hamingjuhornsins sem hægt er að...
Published 02/28/21
Verið velkomin/nn í þáttinn FYRIRMYNDIR í tali og tónum. Í þáttunum fáum við til liðs við okkur tónlistarfólk sem spjallar við okkur og svara nokkrum spurningum m.a um jákvæðni, vináttu, sjálfsmynd o.fl. segja okkur sögur af sér og spila og syngja sín uppáhaldslög. Gestur : Bjarni "Töframaður" Baldvinsson. www.tonasmidjan.is
Published 02/26/21
Verið velkomin/nn í þáttinn "Við erum einstök" Í þessum þáttum segir hún Ingibjörg Þengilsdóttir ráðgjafi okkur sögur sínar í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. - „Í þessum sjöundi þætti heldur hún áfram þar sem frá var horfið í síðasta þætti, þar sem hún talaði um mannhelgi. Hér segir Ingibjörg okkur sögu af því hvernig hún uppgötvaði hæfileika sem hún hafði og afneitaði og hvað hún gerði til þess að nýta sér þá í dag til gleði og gerði þá að atvinnu sinni. Þetta ferli krafðist...
Published 02/26/21
Verið velkomin/nn í Verkfærakassann Í þessum 23. þætti Verkfærakassans ræðir Hrabbý við Ragnhildi Vigfúsdóttur markþjálfa og ráðgjafa um þá umbreytingu sem varð á hennar lífi eftir að hún ákvað að breyta um starfsvettvang ríflega fimmtug, söðla algjörlega um og fylgja hjartanu í átt að því að láta draumana sína rætast. Ragnhildur var m.a. í fyrsta hópi markþjálfa sem útskrifuðust hér á landi og einnig í fyrsta útskriftarhóp í jákvæðri sálfræði hérlendis. Ferðalag Ragnhildar er um margt...
Published 02/25/21
Verið velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs. í þessum fjórða þætti fær Þórdís Jóna til sín góðan gest, Fanneyju Dóru Veigarsdóttur sem hefur frá mögnuðum hlutum að segja m.a.hvað varðar val á starfsferli, hvernig hún fór að því að vinna sig út úr lágu sjálfsmati ásamt erfiðleikum í samskiptum við annað fólk. Þær spjalla um almenningsálítið og hvernig hægt er að tækla það og fara jafnframt yfir marga...
Published 02/23/21
Í þáttunum FYRIRMYNDIR í tali og tónum fáum við til liðs við okkur tónlistarfólk, gesti sem spjalla við okkur og svara nokkrum spurningum m.a um jákvæðni, vináttu, sjálfsmynd o.fl. segja okkur sögur af sér og spila og/eða syngja sín uppáhaldslög. Gestur : Rebekka Sif www.tonasmidjan.is
Published 02/20/21
Verið velkomin/nn í þáttinn "Við erum einstök" Við erum einstök - eru þættir í umsjón Ingibjargar R. Þengilsdòttur andlegs ráðgjafa. Í þessum þáttum hennar segir hún okkur sína sögu í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. - „Hvað er mannhelgi og hvaða máli skiptir hún fyrir okkur ? Í þessum þætti segir hún Ingibjörg okkur allt um það, segir okkur sögu úr sínu lífi og tengir þá sögu við mannhelgi sína" þáttastjórnandi : Ingibjörg R. Þengilsdóttir www.thuskiptirmali.is
Published 02/19/21
Verið velkomin/nn í Verkfærakassann Í þessum 22. þætti Verkfærakassans liggur leið okkar upp í Kjós þar sem Hrabbý hittir fyrir viðmælanda þáttarins, Heimi Loga. Heimir hefur um árabil boðið upp á svitahof eða sweat en einmitt þar lágu leiðir hans og Hrabbýjar saman fyrir um 10 árum síðan. Yfir tebolla ræða þau um lífið og tilveruna og Heimir deilir með okkur lífshlaupi sínu, erfiðleikum æskuáranna, 20 árum af harðri fíkniefnaneyslu, uppgjöfinni sem leiddi til bata og nýja manninum sem...
Published 02/18/21
Velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs. Í þessum þriðja þætti höldum við áfram að forvitnast um markþjálfun og mikilvægi hennar að mati þáttastjórnanda. Þórdís Jóna fær til sín frábæra gesti, systurnar Hörpu Rós og Rebekku Gísladætur. þær eru nýútskrifaðir markþjálfar og með mikla sýn og drauma um framhaldið. Í spjalli þáttarins er farið yfir mikilvægi þess að þekkja sjálfan sig og drauma. Markmið okkar...
Published 02/16/21
Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og rödd, þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. Í hverjum þætti munum við fræðast um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama. Í þættinum í dag fær grein Heiðu Ósk rödd. Heiða er fíkni og forvarnaráðgjafi, auk þess að vera NPL markþjálfi. Hennar sérsvið eru fíkn, bati, fjölskyldumál og persónuleg markþjálfun. Grein dagsins fjallar...
Published 02/14/21
Verið velkomin/nn í Verkfærakassann Í þessum 21. þætti Verkfærakassans er viðmælandi Hrabbýjar hún Nína Wolf Feather Björg. Umræðuefnið er lífið sjálft og stundum ævintýralegt ferðalag Nínu í leit að sjálfri sér. Í þessu einlæga spjalli ræðir Nína m.a. um það hvernig er að alast upp sem næmt barn í umhverfi sem ekki skilur mann auk þess sem hún talar á opinskáan hátt um ævilanga glímu sína við kvíða og meðvirkni. Hæfileiki Nínu til að sjá spaugilegu hliðarnar á lífinu og smitandi hlátrasköll...
Published 02/11/21
Í þáttunum FYRIRMYNDIR í tali og tónum fáum við til liðs við okkur tónlistarfólk, gesti sem spjalla við okkur og svara nokkrum spurningum m.a um jákvæðni, vináttu, sjálfsmynd o.fl. segja okkur sögur af sér og spila og/eða syngja sín uppáhaldslög. Gestur : Jónína Björg www.tonasmidjan.is
Published 02/10/21
Velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs. Í þessum öðrum þætti fær hún til sín góðan gest og mikla fyrirmynd hana Ástu Guðrúnu Guðbrandsdóttur markþjálfa. Í spjalli þeirra fara þær yfir víðan völl í málefnum sem snýr að markþjálfun og þeirra ástríðu sem þær deila varðandi fjölskylduna og að þekkja sjálfan sig. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og...
Published 02/09/21
Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. Í hverjum þætti munum við fræðast um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama. Í þessum fyrsta þætti fær grein Önnu Lóu Ólafsdóttur „Geturðu lánað mér“ rödd, en Anna Lóa er menntaður náms- og starfsráðgjafi, markþjálfi og jafnframt stofnandi Hamingjuhornsins sem hægt er að finna á...
Published 02/07/21