Upptakturinn 2019 - Róbert og Patryk
Listen now
Description
Upptakturinn eru tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna þar sem þau fá tækifæri til þess að senda inn hugmyndir að tónverkum, fullvinna þau með aðstoð tónskálda og heyra þau svo flutt af atvinnutónlistarfólki í Hörpu. Í þessum þáttum kynnumst við öllum þrettán tónskáldunum sem tóku þátt í Upptaktinum árið 2019 og hitum þannig upp fyrir Upptaktinn árið 2020. Verkin sem heyrast í þættinum voru flutt af hljómsveit Upptaktsins í Silfurbergi, þriðjudaginn 9. apríl 2019. Hljómsveit Upptaktsins skipa þau Gróa Margrét Valdimarsdóttir á fiðlu, Herdís Anna Jónsdóttir á víólu, Bryndís Björgvinsdóttir á selló, Gunnlaugur Torfi Stefánsson á bassa, Grímur Helgason á klarinett, Kristján Hrannar Pálsson á píanó, Sigurlaug Björnsdóttir á flautu og Sigurður Ingi Einarsson á slagverk. Árni Freyr Jónsson spilar á gítar í verkinu „Njóttu" og Kolbeinn Sveinsson syngur og rappar í verkinu „Ég rata um heiminn". Annar þáttur: Róbert Nökkvi Jörgensson (12 ára) og verkið hans „Njóttu" Patryk Edel (15 ára) og verkið hans „Ég rata um heiminn" Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir
More Episodes
Published 05/28/20
Published 05/28/20
Saga og Birta segja okkur allt um hljómsveitina One Direction
Published 05/21/20