Upptakturinn 2019 - Hörður og Snæbjartur
Listen now
Description
Upptakturinn eru tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna þar sem þau fá tækifæri til þess að senda inn hugmyndir að tónverkum, fullvinna þau með aðstoð tónskálda og heyra þau svo flutt af atvinnutónlistarfólki í Hörpu. Í þessum þáttum kynnumst við öllum þrettán tónskáldunum sem tóku þátt í Upptaktinum árið 2019, fylgjum verkum þeirra frá innsendri hugmynd að frumflutningi og hitum þannig upp fyrir Upptaktinn árið 2020. Verkin sem heyrast í þættinum voru flutt af hljómsveit Upptaktsins í Silfurbergi, þriðjudaginn 9. apríl 2019. Hljómsveit Upptaktsins skipa þau Gróa Margrét Valdimarsdóttir á fiðlu, Herdís Anna Jónsdóttir á víólu, Bryndís Björgvinsdóttir á selló, Gunnlaugur Torfi Stefánsson á bassa, Grímur Helgason á klarinett, Kristján Hrannar Pálsson á píanó, Sigurlaug Björnsdóttir á flautu og Sigurður Ingi Einarsson á slagverk. Fjórði þáttur: Hörður Kristinsson (10 ára) og verkið „Rússneskur sjómannadans" Snæbjartur Sölvi Kjartansson (12 ára) og verkið „Minning" Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir
More Episodes
Published 05/28/20
Published 05/28/20
Saga og Birta segja okkur allt um hljómsveitina One Direction
Published 05/21/20