Episodes
Unnur hjá Lucinity situr til móts við mig á þessum fallega degi. Við nöfnurnar ætlum að tala um skemmtilega starfsþróun Unnar yfir í mannauðsmálin, hvernig það er að vinna hjá nýsköpunarfyrirtæki og auðvitað almennan áhuga okkar á þessum elskulega málaflokki.  Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum eins og alltaf – Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup, Alfreð og GIGGÓ.
Published 04/22/24
Published 04/22/24
Unnur hjá Lucinity er gestur þáttarins. Við nöfnurnar ætlum að tala um skemmtilega starfsþróun Unnar yfir í mannauðsmálin, hvernig það er að vinna hjá nýsköpunarfyrirtæki og auðvitað almennan áhuga okkar á þessum elskulega málaflokki.   Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum eins og alltaf – Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup og Alfreð.
Published 04/04/24
Gestur þáttarins heitir Jakobína og starfar sem mannauðsstjóri Hrafnistu. Við settumst niður og ræddum stefnumótunarvinnu, fræðslumál, styttingu vinnuvikunnar og allskonar skemmtilegt sem er í gangi hjá þeim. Í raun má segja að undanfarin ár hafi Hrafnista farið í gegnum mikið umbreytingarferli og það kemur skýrt fram miðað við það sem hún segir okkur. Þau vinna meðal annars með það að þau eru þjónustufyrirtæki og það sem kjarnar starfseminnar þeirra er í raun þetta: “Við vinnum á heimili...
Published 02/07/24
Í spjallið til mín að þessu sinni kom Adriana Pétursdóttir. Ég þarf varla að kynna hana til leiks en hún starfar sem leiðtogi starfsmannaþjónustu RIO TINTO og í byrjun árs tók hún við sem formaður Mannauðs, okkar allra besta mannauðsfélags. Við vorum svo sem sammála um það að við hefðum getað spjallað í marga klukkutíma en hér á eftir förum við yfir allt þetta helsta – Mannauðsdaginn sjálfan, hvað hún brennur helst fyrir í tengslum við mannauðsmál og svo auðvitað þróunin framundan. Svo er nú...
Published 11/23/23
Gestur þáttarins heitir Aðalheiður Hreinsdóttir, kölluð Heiða, og starfar sem framkvæmdastjóri LearnCove. Og hvað er nú LearnCove eiginlega? Jú það er auðvitað fræðslukerfi sem Heiða ætlar að segja okkur frá í þessu lauflétta spjalli. Við ræddum um hvað kerfið býður upp á, hverjir eru kostir þess, hversu notendavænt það er og af hverju þetta kerfi er betra en önnur. Til þess að fá að vita allt um það er bara um að gera að koma sér vel fyrir og leggja við hlustir.  Styrktaraðilar þáttarins...
Published 10/17/23
Góðan daginn kæru hlustendur. Gestur þáttarins heitir Sverrir Hjálmarsson og starfar sem ráðgjafi hjá Akademias. Við Sverrir eigum það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á fræðslumálum og þess vegna er það aðal umræðuefni þáttarins. Sverrir segir okkur frá starfi sínu hjá Akademias og þeirri þróun sem á sér stað hjá þeim. Þar má meðal annars nefna fjölbreyttar námsleiðir, rafræna fræðslusafnið, sprettina og fleira skemmtilegt. Við ræddum líka aðeins starfsþróun og svo gervigreind í tengslum...
Published 09/28/23
Í spjallið til mín að þessu sinni kom Inga Þórisdóttir sem starfar sem stjórnendaþjálfi hjá Via Optima. Hún segir okkur frá öllum þeim verkefnum sem hún sinnir í starfi sínu en áhuginn liggur aðallega í stjórnendaþjálfun, starfsmannasamtölum ásamt streitu, kulnun og öllu sem það tengist. Inga segir okkur einnig frá sinni einlægu upplifun af því að vera sagt upp störfum og hvernig maður þarf sjálfur að bera ábyrgð á sinni vegferð og skapa þannig tækifæri. Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af...
Published 04/06/23
Í þessum þætti spjöllum við Guðfinna saman en hún starfar sem mannauðsstjóri Þjónustu- og nýsköpunarsviðs hjá Reykjavíkurborg. Ótrúlegt en satt þá ræddum við eiginlega bara um vinnustaðamenningu og endurgjöf. Ekki að það sé eitthvað óáhugavert heldur náðum við svo góðri dýpt í þessari umræðu. Guðfinna talar svo sannarlega frá hjartanu og leyfir okkur að heyra hvernig hennar reynsla hefur nýst hjá Reykjavíkurborg við að byggja upp nýtt svið. Styrktaraðilar þáttarins er Akademias, Moodup, YAY...
Published 03/01/23
Hann heitir Davíð og er stofnandi Swapp Agency. Saga þessa fyrirtækis er mjög spennandi. Allt frá því að hugmyndin fæðist einhversstaðar í Asíu og að vera með nokkrar skrifstofur á Norðurlöndunum. Davíð ætlar að kynna fyrirtækið fyrir okkur og í þokkabót fáum við að heyra mjög svo skemmtilegar pælingar varðandi fjarvinnu…og við erum ekki að tala sérstaklega um heimavinnu sem við kynntumst öll í Covid. Ónei, þetta er miklu skemmtilegra concept. Kannski nær því að fara til Bali í mánuð og vinna...
Published 10/26/22
Ragnhildur er annar eigandi og stofnandi Auðnast. Hún er mjög mikið menntuð og ég ætla bara að leyfa henni að segja ykkur frá því. Við fórum auðvitað yfir það hvað Auðnast stendur fyrir og hver þeirra sýn er. Félagslega umhverfið í heild sinni er þeirra nálgun og þar hefur safnast mikil reynsla og þekking seinustu ár. Þátturinn er í boði Akademias, YAY, Moodup og Alfreð.
Published 10/06/22
Helga Halldórsdóttir er gestur þáttarins en hún starfar sem forstöðumaður mannauðssviðs hjá Arion banka. Við fórum yfir víðan völl í þættinum. Helga segir okkur frá sinni vegferð í mannauðsmálum, hvernig Arion banki hefur notað breytingastjórnun til þess að ná árangri, mánaðarlegar mælingar, mannauðsstefnuna þeirra, húsnæðismál og margt fleira. Þátturinn er í boði Akademias, YAY, 50skills og Moodup. Rúsínan í pylsuendanum - Fulltrúar fyrirtækja sem hafa samband við YAY og prófa að gleðja...
Published 06/09/22
Í þessum þætti ætlum við að tala við Röggu hjá PROevents & PROcoaching. Í þættinum förum við yfir hvaða þjónustu hún er að bjóða upp á sem er meðal annars teymisþjálfun, einstaklingsþjálfun og stjórnendaþjálfun. Eins og þið heyrið þá hefur hún mikla ástríðu fyrir þjálfun en Ragga er einn reynslumesti markþjálfi á landinu og hefur starfað bæði hérlendis og erlendis í mörg ár. Við komumst ekki hjá því að ræða Covid og hvernig hún snéri vörn í sókn þegar allt fór á hliðina. Svona til þess að...
Published 04/06/22
Í þessum þætti kemur Hildur Sigurðardóttir í spjall til mín. Hildur starfar sem mannauðsstjóri á RÚV en hún var aðeins búin að starfa á RÚV í nokkra mánuði þegar Covid skall á svo það var þónokkur áskorun að byrja í nýrri vinnu á þeim tíma. Við ræðum stuttlega starfsumhverfi fjölmiðlafólks sem hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og vindum okkur svo í fróðlegt spjall um jafnréttismál þar sem hefur verið lögð áhersla á að skoða kynjahlutfall viðmælenda RÚV og þeirra sem starfa við...
Published 03/18/22
Gestur þáttarins er Elísabet Helgadóttir en hún er framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Icelandair. Félagið hefur vægast sagt þurft að takast á við ýmsar áskoranir seinustu tvö ár eins og mörg önnur fyrirtæki. Í þættinum spjöllum við Elísabet um þær áskoranir sem félagið hefur þurft að takast á við ásamt því að vera í kjaraviðræðum, huga að fjarvinnu og endurskipulagningu félagsins. Það er eiginlega hálf ótrúlegt að félagið hafi náð að halda velli í gegnum þessa veirutíma en Elísabet segir að...
Published 03/02/22
Thor Olafsson er stofnandi Strategic Leadership og hefur unnið sem stjórnendaráðgjafi í meira en 20 ár. Hann er sestur hjá mér og það eina sem við ætlum að ræða eru stjórnendur og aftur stjórnendur. En hvað er það við stjórnendur sem er svona merkilegt? Jú, það er nefnilega frekar margt. Við ræðum um stjórnendaþjálfun, hlutverk stjórnenda, fyrirtækjamenningu, samvinnu stjórenda og starfsfólks og síðast en alls ekki síst er það egó stjórnenda. Hvað er egó stjórnenda? Thor segir okkur allt um...
Published 02/10/22
Gestur þáttarins er enginn önnur en Harpa Magnúsdóttir, stofnandi Hoobla. Drifkrafturinn í Hörpu er ótrúlegur, hún stóð á tímamótum í byrjun árs 2021 eftir 15 ára starf hjá ORF líftækni. Hún fann að það voru tækifæri í gig-umhverfinu og nokkrum mánuðum seinna var hún búin að stofna Hoobla. Harpa segir okkur frá þessu öllu saman ásamt skemmtilegu samstarfi við Siggu Kling.  Styrktarðilar þáttarins eru Akademias, Moodup, Origo og Alfreð. 
Published 12/15/21
Við Kristín hittumst í Akademias stúdíóinu og töluðum um hið frábæra jafnlaunakerfi. Origo býður nú upp á þjónustu sem heitir Justly Pay og tengist jafnlaunakerfinu í heild. Justly Pay er í þremur þrepum sem Kristín fer vel yfir og svo ræðum við hvernig er hægt að vinna með það. Jafnlaunakerfið er  ekkert annað en gæðakerfi og þess vegna er þessi snilld frá Origo eflaust að fara að spara fjöldan allan af vinnustundum. Þátturinn er í boði Akademias, 50skills og Moodup. 
Published 10/08/21
Í Akademias stúdíóinu situr ungur maður að nafni Björn sem stofnaði nýverið fyrirtækið Moodup en það sérhæfir sig í að mæla starfsánægju hjá fyrirtækjum. Björn er sprenglærður og hefur komið víða við á íslenskum vinnumarkaði, meðal annars unnið sem aðalhagfræðingur Viðskiptaráðs. Hann stofnaði Moodup í þeim tilgangi að efla starfsánægju starfsfólks með einföldum og þægilegum hætti. Ótrúlega skilvirk lausn sem þið fáið að heyra allt um. Þátturinn er í boði Akademias, Mótun og Alfreð.
Published 08/12/21
Við Erla María sem starfar sem mannauðsstjóri Krónunnar hittumst alveg eldhressar í Akademias stúdíóinu. Erla segir okkur frá starfsemi Krónunnar ásamt því að fara yfir málefni sem tengjast ungum stjórnendum, Krónuskólanum, velferðarpakkanum þeirra og hvernig þau tókust á við Covid. Virkilega skemmtileg hlustun! Þátturinn er í boði Akademias, 50skills, Moodup og Mótun. 
Published 06/24/21
Við Ágústa hittumst í Akademias stúdíóinu en hún starfar sem forstöðumaður mannauðsmála hjá Sjóvá. Það sem mér hefur þótt einna áhugaverðast við þeirra áherslur eru jafnréttismálin. Þau fá svo sannarlega svigrúm í þessu spjalli en auk þess ræddum við stefnumótunarvinnu sem þau fara í á 2-3 ára fresti þar sem allir starfsmenn taka þátt og leggja sitt af mörkum. Einnig ræddum við um starfsumhverfið og sálfélagslega áhættumatið sem þau leggja mikla áherslu á.  Þátturinn er í boði Akademias,...
Published 06/03/21
Alþjóðlegi mannauðsdagurinn er 20. maí 2021. Í samstarfi við Mannauð, félags mannauðsfólks á Íslandi er þátturinn því með aðeins öðruvísi sniði en vanalega en hann er sérstaklega tileinkaður þessum degi. Ég fékk til mín alveg frábæra gesti sem allir eiga það sameiginlegt að starfa við mannauðsmál og eru núverandi og fyrrverandi formenn Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi en það eru Ásdís Eir sem er núverandi formaður félagsins, Ketill Berg, Dröfn, Ella Sigga og Brynjar Már. Í þættinum...
Published 05/20/21
Í Akademias stúdíóinu er Sigríður Harðardóttir sem er sviðsstjóri mannauðs- og gæðamála hjá Strætó. Við ræddum meðal annars starfsþjálfunarkerfi fyrir vagnstjóra, öflugt fræðslustarf þar sem áhersla er lögð á endurmenntun vagnstjóra og hvernig er hægt að viðhalda þeirra þekkingu og færni í starfi, streita og álag kom til tals þar sem þau fóru í áhugaverða vinnu í tengslum við að draga úr þessum þáttum í starfsumhverfinu í samstarfi við VÍS og svo fórum við yfir styttingu vinnuvikunnar í...
Published 05/17/21
Góðir gestir, næsti viðmælandi er ekki af verri endanum. Hann heitir Ketill og er mannauðsstjóri hjá Marel. Ég bauð Ketil velkominn í Akademias stúdíóið þar sem við náðum heldur betur góðu spjalli. Ketill er fyrsti viðmælandi minn sem nær að tala í tæpa tvo klukkutíma en ekki örvænta, þetta er svo fróðlegt spjall að það nær bara varla nokkurri átt. Ketill segir okkur frá hverjar áherslurnar eru hjá Marel, hvernig er að vinna hjá fyrirtæki á alþjóðavísu með 7.500 starfsmenn, hvernig þau tókust...
Published 04/29/21
Við Elín hjá Hugarheimi skelltum okkur í Akademias stúdíóið. Hugarheimur sérhæfir sig meðal annars í að sálfélagslegu þáttunum í vinnuumhverfinu eins og streitu, kulnun, álagi og öðru áreiti sem hefur áhrif á líðan okkar bæði í starfi og einkalífi. Við ræddum einmitt þessa þætti betur og fórum yfir það hvernig er hægt að búa til aukið jafnvægi milli vinnu og einkalífs og hvernig við getum náð betri hvíld án þess endilega að sofa meira. Stytting vinnuvikunnar kom einnig til tals og þá...
Published 03/17/21