Episodes
Hver kannast ekki við að hafa heyrt eða lesið sögur um stórfót hinn ógurlega, eða sambærilega veru? Einhverskonar risavaxinn og kafloðinn mannapa sem gengur uppréttur og virðist ráfa um mannheima hrellandi fólk og ýmsan búfénað á afskekktum svæðum? Til eru mýmargar sögur víðvsvegar um heiminn af fjöldanum öllum af stórfótum allt frá Bandaríkjunum og Kanada til Ástralíu, Namibíu og Braselíu og víðar.  Mannaparnir eða stórfótarnir eru sumir hverjir ógnar stórir en aðrir smærri, allt eftir því...
Published 05/03/24
Sean Love Combs, betur þekktur sem Puff Daddy eða P. Diddy hefur verið ein skærasta stjarna tónlistar og menningargeirans vestanhafs undanfarna áratugi. Hann hefur unnið með fjöldanum öllum af stórstjörnum eftir að hafa stigið fram á sjónarsviðið á 10.áratugu síðustu aldar.  Undanfarnar vikur og mánuði hafa komið fram fjöldin allur af frásögnum frá fólki sem segir farir sínar hreint ekki sléttar af samskiptum sínum við Didday og hafa þó nokkrir aðilar lýst því hvernig Diddy misnotaði þau...
Published 04/19/24
Published 04/19/24
Pýramídarnir í Egyptalandi hafa löngum verið mörgu fólki hugleiknir og ekki að ósekju. Fá fyrirbæri, ef einhver,  í heiminum þykja jafn mikil verkfræðiundur og byggingarfræðileg afrek og Pýramídarnir og framleiddar hafa verið fjöldinn allur af myndum og sjónvarpsþáttum þar sem mismiklir vitringar og fræðingar í þessum efnum spá og spekúlera hvernig pýramídarnir urðu til og hversvegna.  Sumir þessara, oft á tíðum sjálfskipuðu, fræðinga hafa eignað geimverum eða öðrum framandi verum heiðurinn...
Published 04/05/24
Pýramídarnir í Egyptalandi eru að flestra mati eitthvert merkasta byggingar og verkfræði -afrek mannkynssögunnar og eru þeir eina af upphaflegu sjö undrum veraldar sem enn standa í dag. Pýramídarnir í Egyptalandi eru fjölmargir og vissulega mis merkilegir og áhugaverðir en þekktastir og langumtalaðastir eru pýramídarnir 3 í Gísa. Þar sem Pýramídinn mikli í Gísa er langvinsælastur og mikilfenglegastur. En hvernig má það vera að Egyptar hafi búið yfir svona gífurlega mikilli verkkunnáttu og...
Published 03/22/24
Bófarapp (e. Gangsta Rap) naut mikilla vinsælda á 10.áratug síðustu aldar og þá sér í lagi undir lok áratugarins. Menn einsog 2pac, Biggie Smalls og Coolio nutu mikilla vinsælda og sveitir á borð við Wu Tang Clan og Cypress Hill ómuðu á öldum ljósvakans.  Líf og lífstíll glæponsins sem síslaði með ýmis eiturlyf og aðra glæpi og hreykti sér svo af því í textum sínum þótti eftirsóknarvert og kvikmyndir og sjónvarpsefni sem lofsamaði þennan lífsstíl voru framleiddar í hrönnum og víðar buxur,...
Published 03/08/24
Aaron Swartz einn stofnanda Reddit var sínum tíma, af mörgum talinn, einn fremsti forritari og hugsjónamaður heims, sem barðist af fullum þunga fyrir auknu tjáningarfrelsi, frjálsara interneti og betri veröld. Ungur að árum vakti hann athygli fyrir gífurlegar gáfur og forritunar hæfileika og sem dæmi má nefna að strax á unglingsaldri átti hann þátt í að þróa RSS staðalinn og seinna var hann m.a hluti af teyminu sem kom á Creative Commons. Þekktastur er hann þó eflaust fyrir baráttu sína...
Published 02/23/24
Árið 1996 var kindin Dolly klónuð fyrst allra dýra. Í kjölfarið vöknuðu allskyns siðferðis og álita spurningar um klónanir og afskipti og íhlutanir mannsins af náttúrunni almennt. Stuttu síðar var klónun manna bönnuð í Bandaríkjunum og í kjölfarið fylgdu flestar aðrar þjóðir heims í fóstbor þeirra.  En getur verið að þrátt fyrir blátt bann við klónun manna hafi fólk samt verið klónað? Hvað ef að frægum og valdamiklum einstaklingum hefur jafnvel verið skipt út fyrir klóna, sem láta auðveldlega...
Published 02/09/24
Það efast varla nokkur manneskja um þá staðreynd að Jeffrey Epstein  hafi verið illa innrættur fantur og fúlmenni með viðbjóðslegar hvatir og enn færri furðuðu sig á því þegar hann var dæmdur fyrir allan hryllinginn.   En hvað með Ghislaine Maxwell góðvinkonu hans? Er hún jafn sek? Og hvernig komust þessi skötuhjú og góðvinir upp með voðaverk af þessari stærðargráður án vitorðs og afskipta yfirvalda er líklega eitthvað sem færri skilja. Getur virkilega verið að ekki ein lögregla, dómari eða...
Published 01/26/24
Til eru fjölmörg samtök fyrir ríka, fræga og fína til þess að hittast, ræða málin fá sér einn til tvo kokteila og mynda tengsl.  En þekktust og alræmdust slíkra samtaka eru líklega WEF (World Economic Forum). Yfirlýst markmið þessara samtaka er iðulega að auka samvinnu, sjálfbærni og draga úr alls kyns hindrunum sem mögulega gætu staðið í vegi fyrir frekari þróun mannkyns. Það þarf að tryggja efnahagslegan vöxt án þess að ganga á náttúruna eða að vöxturinn bitni á framtíðar kynslóðum. Það...
Published 01/12/24
Hvað eiga Katy Perry, Karl Breta konungur, Justin Bieber, George Bush og Bill Clinton sameiginlegt? Þau eru öll eðlufólk ef eitthvað er að marka David Icke og fylgjendur hans.  En hvað er eiginlega eðlufólk og hvaðan kemur það?  Hvernig getum við aðgreint þau frá öðru fólki og hvað gengur þeim eiginlega til?  Kenningin um eðlufólkið, sem stundum er kallað geimeðlur, er líklega ein af furðulegri samsæriskenningum sem til eru en lifir þó góðu lífi og á sér merkilega marga fylgjendur. Svo marga...
Published 12/29/23
Tungllending Bandaríkjamanna árið 1969 er að margra mati eitt stærsta afrek mannkynssögunnar eða í það minnsta mesta tækniundur 20.aldarinnar. En einnig eru til þeir einstaklingar sem einfaldlega kaupa ekki opinberu skýringuna og hreinlega neita því að mannfólk hafi nokkurn tíma stigið fæti á tunglið. Í huga þessara Álhatta var einungis um einn allsherjar blekkingarleik og sjónarspil í boði Hollywood að ræða og Neil Armstrong Buzz Aldrin og Michael Collins ekki aðeins fóru aldrei til...
Published 12/15/23
Hvort sem fólk hefur áhuga á knattspyrnu eður ei, þá höfum við líklega flest heyrt um spillinguna og það bilaðslega magn peninga sem flæðir innan knattspyrnu hreyfingarinnar. Löngum hefur verið rætt um að peningar séu að eyðileggja íþróttina og að leikmenn séu á allt of háum launum sem séu úr takt við allan raunveruleika. En þó líklega aldrei eins mikið og eftir að olíufurstar og fjárfestingarsjóðir heilu þjóðríkjanna fóru að eignast knattspyrnufélög.  Áður höfðu kaup Roman Abramovich á...
Published 12/01/23
Sjónvarpsþættirnir um Simpsons fjölskylduna eru einhverjir farsælustu þættir allra tíma og lang langlífustu þættir sem sýndir eru í dag. Í rúm 30 ár hefur þessi gula og skondna vísitölufjölskylda og aðrir bæjarbúar Springfield skemmt áhorfendum með alls vitleysu og uppátækjum og mótað skopskyn fleiri kynslóða.   Út um allt á internetinu má finna greinar og myndbönd um allskonar atburði sem höfundar Simpsons fjölskyldunnar eiga að hafa spáð fyrir um. Málsmetandi aðili þáttarins er Alexandra...
Published 11/17/23
Í þessum hluta 2 af Álhattinum  halda Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar áfram að ræða kenninguna um að 9/11 hafi verið innanbúðarverk. Atburðirnir á Manhattan í New York, að morgni 11.September 2001, eru líklega einhver skelfilegustu voðaverk sem framin hafa verið, amk í seinni tíð.  Hvort sem að fólk trúir því að um hræðileg hryðjuverk eða þaulskipulögð innanbúðarverk hafi verið að ræða. Í fyrri þætti Álhattarins um voðaverkin í síðustu viku fjölluðu Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og...
Published 11/03/23
Í nýjasta þætti Álhattarins ræða Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór eina umdeildustu samsæriskenningu allra tíma, kenninguna sem hræddi ungan Guðjón svo mikið að hann var aldrei samur og varð kveikjan að ævilangri baráttu hans til að afhjúpa og uppræta lygar, feluleiki og samsæri heimsins. Þessi þáttur er hluti 1 af 2 sem fjalla um hryðjuverkaárásina hinn 11 september 2001, iðulega þekkt sem 9/11. Það efast líklega fáir um að hryðjuverkaárásirnar að morgni 11 september 2001 hafi...
Published 10/27/23
Í nýjasta þætti Álhattarins velta Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór fyrir sér þeirri glænýju og afar áhugaverðu samsæriskenningu að háþróuðum örbylgjuvopnum hafi verið beitt til þess að kveikja skógareldana á Maui og þá hvers vegna? Skógareldarnir á Maui, Hawaii, sem áttu sér stað síðsumars og í haust 2023 eru sagðir vera umfangsmestu skógareldar í sögu Hawaii og mestu náttúruhamfarir sem átt hafa sér stað í Bandaríkjunum á síðustu hundrað árum. En voru þetta raunverulegar og...
Published 10/13/23
Diana Frances Spencer, betur þekkt sem Díana prinsessa af Wales, var ein þekktasta og dáðasta kona veraldar seint á síðustu öld. Hún giftist Karli, þá bretaprinsi og nú konungi, í júlí 1981 og naut hún strax mikilla vinsælda á Bretlandseyjum og víðar. Hjá að er virtist öllum nema konungsfjölskyldunni. Samband hennar og Karls var strax frá upphafi mjög óhamingjusamt og stormasamt og fljótt fóru að hvíslast út sögur um ótryggð og framhjáhald þeirra hjóna. En það var ekki bara stormasamt...
Published 09/29/23
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar það sem sumir kalla samsæriskenningu allra samsæriskenninga, er leynireglan Illuminati til og stjórnar hún heiminum? Til eru hin ýmsu leynifélög og reglur um allan heim með misjafnlega göfug eða yfirlýst markmið. Næstum öll höfum við einhverntímann heyrt talað um félög einsog Skulls & Bones, templarana, frímúrara ofl. En þekktast þeirra allra, af undanskildum Frímúrurum kannski, er þó eflaust fyrirbærið Illuminati....
Published 09/15/23
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar þá margfrægu samsæriskenningu að bandaríski barnaníðingurinn, nauðgarinn og auðjöfurinn Jeffrey Epstein hafi verið strengjabrúða fyrir hulduöflin sem stjórna heiminum. Það efast eflaust enginn um að Jeffrey Epstein hafi verið fantur og fúlmenni og líklega myndi flest fólk lýsa honum sem sturluðum og sóðalegum siðblindingja.  En hvað bjó að baki brotum hans og hvernig komumst hann og vinir hans upp með svona svæsin brot...
Published 09/01/23
Hver kannast ekki við söguna um Titanic? Stærsta og glæsilegasta skipi sögunnar sem sigldi á ísjaka og sökk í sinni jómfrúarsiglingu frá Southampton í England til New York í Ameríku? En er sagan sönn?  Í þessari viku ræða félagarnir í Álhattinum lítt þekkta og ef til vill umdeilda samsæriskenningu um afdrif og örlög Titanic.  Getur verið að Titanic hafi í raun aldrei farist og að  um annað skip hafi verið að ræða? Eða var Titanic grandað vísvitandi til þess að taka af lífi óþægilega...
Published 08/18/23
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón Heiðar, Haukur ísbjörn og Ómar hvort geimverur hafi heimsótt jörðina og yfirvöld hilmi yfir tilvist þeirra. Öll höfum við horft uppí stjörnubjartan næturhiminn og velt fyrir okkur hvort við séum ein í þessu sólkerfi, þessari vetrarbraut, þessum alheim. Eru geimverur til? Eru þær greindar eða bara einfaldar örverur? Hafa þær heimsótt jörðina? Ef svo er, hvar eru sönnunargögnin og af hverju eru ekki allir að tala um þetta? Til eru endalausar sögur af...
Published 08/04/23
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar um eina klassískustu samsæriskenningu allra tíma, morðið á John F. Kennedy forseta Bandaríkjanna.  Var Lee Harry Oswald einn að verki líkt og opinbera skýringin segir eða er um allsherjar sögufölsun að ræða og John F.  Kennedy var komið fyrir kattarnef af myrkraöflum huldumanna? UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka...
Published 07/20/23
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar þá umdeildu en jafnframt áhugaverðu kenningu að kanadíska tónlistarkonan Avril Lavigne sé dáin eða horfin og í stað hennar sé komin staðgengill eða jafnvel klón. Sérstakur málsmetandi gestur þáttarins er stjórnmálafræðingurinn Viktor Orri Valgarðsson sem gefur sitt álit á kenningunni. Fólk skiptist í fylkingar. Sumir segja kenninguna algjört kjaftæði en fjölmargir aðdáendur um allan heim segjast sjá miklar breytingar á Avril...
Published 07/07/23
Í þessum fyrsta þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar conceptið fyrir hlaðvarpið Álhattinn, almennt um samsæriskenningar, þeirra fyrstu upplifun af þeim og uppáhalds kenningarnar þeirra. Sérstakur málsmetandi gestur þáttarins er Gnúsi Yones sem gefur sitt take á samsæriskenningar. Elvis lifir, Paul McCartney er dauður, Courtney drap Kurt Cobain, lentum við á tunglinu, hver byggði pýramídina, X-Files, hver stjórnar heiminum, var 9/11 samsæri, er eðlufólk til, var Covid...
Published 06/30/23