Samráð milli plötufyrirtækja & einkarekinna fangelsa í BNA ýtti vísvitandi undir vinsældir bófarapps (e. Gangsta Rap)
Listen now
Description
Bófarapp (e. Gangsta Rap) naut mikilla vinsælda á 10.áratug síðustu aldar og þá sér í lagi undir lok áratugarins. Menn einsog 2pac, Biggie Smalls og Coolio nutu mikilla vinsælda og sveitir á borð við Wu Tang Clan og Cypress Hill ómuðu á öldum ljósvakans.  Líf og lífstíll glæponsins sem síslaði með ýmis eiturlyf og aðra glæpi og hreykti sér svo af því í textum sínum þótti eftirsóknarvert og kvikmyndir og sjónvarpsefni sem lofsamaði þennan lífsstíl voru framleiddar í hrönnum og víðar buxur, gullkeðjur og aðrar vörur sem tengdar eru við gengja lífsstíl seldust eins og heitar lummur. En hvað olli þessum skyndilegu og óvæntu vinsældum bófarappsins? Hversvegna fóru plötufyrirtæki allt í einu og að því er virðist upp úr þurru að leggja höfuðáherslu á tónlist og dægurmenningu sem lofsamar eiturlyfjasölu, morð og aðra glæpi? Hvað hefur þetta allt saman með menningarstríð austurstrandarinnar og vesturstrandarinnar að gera og hvers vegna var annað tónlistarfólk í öðrum geirum ekki jafn iðið við glæpastarfsemi?  Hvað hvatti þessar stóru útgáfur til þess að ýta undir samfélagsmein eins og morð og fíkniefnaneyslu? Getur verið að plötuútgefendur hafi mögulega haft hagsmuni af því að halda glæpatíðni hárri? Hvað hefur þetta með einkarekin fangelsi að gera og getur verið að eigendur fangelsanna tengist eigendum plötufyrirtækja á einhvern hátt? Þetta, stríðið gegn fíkniefnum, deilurnar milli oasis og blur, nýjustu vendingar í rappstríðinu í Chicago og svo margt, margt fleira áhugavert í nýjasta þættinum af Álhattinum.  Þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá áhugaverðu kenningu að eigendur plötufyrirtækja og einkarekinna fangelsa í Bandaríkjunum hafi vísvitandi ýtt undir vinsældir bófarapps á 10.áratug síðustu aldar til þess að fylla fangelsin.   HLEKKIR Á ÍTAREFNI: Ice Cube Admits 90's Gangster Rap was a Government PsyopÁTRÚNAÐARGOÐIN - TungumálararBlondie - RaptureCoolio - Gangsta's ParadiseChief Keef - I Don't Like f/ Lil ReeseScapegoatFbg Duck - Dead Bitches Official VideoKing Von "Crazy Story" UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
More Episodes
Seðlabanki Bandaríkja Norður-Ameríku (e. federal reserve) hefur löngum verið umdeild stofnun sem mikið hefur verið karpað um. Sú staðreynd að bankinn sé í einkaeigu fremur en ríkiseigu þykir afar sérstakt og hefur margur álhatturinn bent á að slíkt hljóti að teljast í hæsta máta...
Published 05/17/24
Published 05/17/24
Hver kannast ekki við að hafa heyrt eða lesið sögur um stórfót hinn ógurlega, eða sambærilega veru? Einhverskonar risavaxinn og kafloðinn mannapa sem gengur uppréttur og virðist ráfa um mannheima hrellandi fólk og ýmsan búfénað á afskekktum svæðum? Til eru mýmargar sögur víðvsvegar um heiminn af...
Published 05/03/24