Aaron Swartz stofnanda Reddit var komið fyrir kattarnef af andstæðingum málfrelsis
Listen now
Description
Aaron Swartz einn stofnanda Reddit var sínum tíma, af mörgum talinn, einn fremsti forritari og hugsjónamaður heims, sem barðist af fullum þunga fyrir auknu tjáningarfrelsi, frjálsara interneti og betri veröld. Ungur að árum vakti hann athygli fyrir gífurlegar gáfur og forritunar hæfileika og sem dæmi má nefna að strax á unglingsaldri átti hann þátt í að þróa RSS staðalinn og seinna var hann m.a hluti af teyminu sem kom á Creative Commons. Þekktastur er hann þó eflaust fyrir baráttu sína gegn frumvörpunum SOPA og PIPA sem voru frumvörp sem hefðu takmarkað verulega athafnar og tjáningarfrelsi fólks á netinu. En þökk sé baráttu Aaron og fleiri þá tókst almenningi að stöðva frumvörpin ógurlegu. Auk þess að brjótast inn í MIT háskólann og fela þar fartölvu sem hann hafði forritað sérstaklega til þess að stela gífurlegu magni af gögnum á ógnarhraða. Fyrir þetta sóttu Bandarísk yfirvöld fast á hælar honum og hugðust draga Aaron fyrir alríkisdóm og skella honum í margra áratuga fangelsi. En á meðan Aaron beið réttarhalda sinna fremur hann öllum á óvörum sjálfvíg í búð sinni. Eða svo segir amk opinbera sagan sem yfirvöld vilja að við trúum. En ekki eru allir sem kaupa þessa sögu yfirvalda og telja afar ólíklegt að Aaron hafi fallið fyrir eigin hendi. Getur kannski verið að Aaron hafi fundið eða séð eitthvað af gögnum sem ekki máttu líta dagsins ljós eða komast í hendur almennings?  Hvernig tengist þetta hinum títtnefndu og margumræddu hulduöflum og hvað í veröldinni hefur Epstein góðvinur þáttarins með málið að gera? Hversvegna valdi Aaron að brjótast inn í MIT en ekki einhvern annan háskóla og hvernig tengist þetta hinum gífurlega metnaðarfullu "góðgerðarverkefni" One Laptop Per Child? Þetta, Julian Assange, Alexei Navalny og svo margt margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum.  HLEKKIR Á ÍTAREFNI: The Internet's Own Boy: The Story of Aaron Swartz | full movie (2014)'The Murder of Aaron Swartz' - RumbleDad_ The govt. killed my son, Reddit co-founderPresident Joe Biden Boasted About Using A Billion-Dollar Loan Agreement With Ukraine As LeverageAaron Swartz_ How We Stopped SOPAWhat Is Reddit_ How Reddit became the front page of the internetHunter Biden on _Beautiful Things_ and his struggles with substance abuseHow Downloading Too Much Destroyed Reddit's Founder One Laptop Per ChildTop MIT Official Resigns Over Epstein DonationsCornyn Questions Holder Over Death of Aaron SwartzUM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
More Episodes
Seðlabanki Bandaríkja Norður-Ameríku (e. federal reserve) hefur löngum verið umdeild stofnun sem mikið hefur verið karpað um. Sú staðreynd að bankinn sé í einkaeigu fremur en ríkiseigu þykir afar sérstakt og hefur margur álhatturinn bent á að slíkt hljóti að teljast í hæsta máta...
Published 05/17/24
Published 05/17/24
Hver kannast ekki við að hafa heyrt eða lesið sögur um stórfót hinn ógurlega, eða sambærilega veru? Einhverskonar risavaxinn og kafloðinn mannapa sem gengur uppréttur og virðist ráfa um mannheima hrellandi fólk og ýmsan búfénað á afskekktum svæðum? Til eru mýmargar sögur víðvsvegar um heiminn af...
Published 05/03/24