P Diddy er Jeffrey Epstein Hip Hop heimsins
Listen now
Description
Sean Love Combs, betur þekktur sem Puff Daddy eða P. Diddy hefur verið ein skærasta stjarna tónlistar og menningargeirans vestanhafs undanfarna áratugi. Hann hefur unnið með fjöldanum öllum af stórstjörnum eftir að hafa stigið fram á sjónarsviðið á 10.áratugu síðustu aldar.  Undanfarnar vikur og mánuði hafa komið fram fjöldin allur af frásögnum frá fólki sem segir farir sínar hreint ekki sléttar af samskiptum sínum við Didday og hafa þó nokkrir aðilar lýst því hvernig Diddy misnotaði þau kynferðislega.  Aðrir hafa lýst dýrslegum og svæsnum kynsvöllum heima hjá Diddy og djöfullegum partíum sem gengu langt út fyrir öll velsæmismörk jafnvel hörðustu glæpamanna. Allt saman var þetta svo tekið upp á myndavélar sem hafði verið komið fyrir í hverjum króka og kima í risa stórri höll Diddy. Tugir ef ekki hundruðir myndavéla og myndbandsupptökur fundust við húsleit á heimili Diddy og mögulegt er að hann sé á leið í fangelsi það sem eftir lifir ævi sinnar.  Flestar fjalla sögurnar þó um hin svæsnu kynsvöll og djöfullegu teiti sem Diddy hélt í höllum sínum og hafa einhverjir gert að því skóna að þarna hafi Diddy verið að reyna að safna saman vafasömu efni af valdamiklu fólki til þess að eiga höggstað á þetta fólk í framtíðinni og mögulega kúga það til allskyns athafna sem það annars væri ekki til í.  Ekki svo ósvipað öllum viðbjóðnum og því sem fór fram í híbýlum Jeffrey Epstein.  Allt þetta og svo margt margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá skemmtilegu samsæriskenningu að Sean Love Combs, betur þekktur sem Puff Daddy eða P. Diddy sé Jeffrey Epstein Hip Hop heimsins.  HLEKKIR Á ÍTAREFNI JUSTIN BIEBER's 48 HRS with DIDDY!!JUSTIN BIEBER JOINS DIDDY'S DIRTY MONEY CREW!Justin Bieber Gets EMOTIONAL About 'Protecting' Billie Eilish1990 Drew Barrymore interviews (Oprah and Arsenio Hall)Drew Barrymore's Classic First Appearance | Carson Tonight Show2Pac - Hit 'Em Up (Dirty)Gene Deal Reveals List Of HOLLYWOOD MEN Diddy SLEPT WITH (Jamie Foxx, Leo Di Caprio?!)Gene Deal On Diddy Allegedly Having Cameras In Every Room & Blackmailing Celebrities & PoliticiansDMX - Spazzes Out The Industry2005: Diddy & The Lox HEATED Argument On Live radio Over Contract DisputeKatt Williams on Hollywood Drug Use & PartiesDave Chappelle Will Not Wear A Dress . Hence.. Africa!Katt Williams on Martin Lawrence & Big Momma's House 2UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
More Episodes
Hver kannast ekki við að hafa heyrt eða lesið sögur um stórfót hinn ógurlega, eða sambærilega veru? Einhverskonar risavaxinn og kafloðinn mannapa sem gengur uppréttur og virðist ráfa um mannheima hrellandi fólk og ýmsan búfénað á afskekktum svæðum? Til eru mýmargar sögur víðvsvegar um heiminn af...
Published 05/03/24
Published 04/19/24
Pýramídarnir í Egyptalandi hafa löngum verið mörgu fólki hugleiknir og ekki að ósekju. Fá fyrirbæri, ef einhver,  í heiminum þykja jafn mikil verkfræðiundur og byggingarfræðileg afrek og Pýramídarnir og framleiddar hafa verið fjöldinn allur af myndum og sjónvarpsþáttum þar sem mismiklir vitringar...
Published 04/05/24