P2: Pýramídarnir í Egyptalandi voru ekki byggðir eins og okkur er kennt í sögubókum | Hluti 2
Listen now
Description
Pýramídarnir í Egyptalandi hafa löngum verið mörgu fólki hugleiknir og ekki að ósekju. Fá fyrirbæri, ef einhver,  í heiminum þykja jafn mikil verkfræðiundur og byggingarfræðileg afrek og Pýramídarnir og framleiddar hafa verið fjöldinn allur af myndum og sjónvarpsþáttum þar sem mismiklir vitringar og fræðingar í þessum efnum spá og spekúlera hvernig pýramídarnir urðu til og hversvegna.  Sumir þessara, oft á tíðum sjálfskipuðu, fræðinga hafa eignað geimverum eða öðrum framandi verum heiðurinn að byggingu pýramídanna en aðrir vilja meina að samfélag manna hafi á öldum áður verið mun háþróaðra og tæknivæddara en fornleifafræðingar og annað fræðifólk telur. Eða getur verið að Egyptar hafi notast við einhverskonar hraðþornandi steypu sem þeir helltu í einhverskonar form eða skapalón til að móta steinana jafnóðum og píramídarnir voru byggðir? Eða notuðu þeir kannski einhverja sérstaka tíðni eða bylgjulengd til þess að lyfta steinunum upp? Eða gengu kannski risar um jörðina og þessir risar byggðu píramídana og fóru jafnvel létta með það?  Í þessum seinni hluta Álhattarins um píramídana í Egyptalandi ræða þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áfram um Egyptaland til forna og hvaða aðrar skýringar gætu hugsanlega fræðilega legið að baki byggingu píramídanna.  Allt þetta og svo margt margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum. HLEKKIR Á ÍTAREFNI The Mummy Official Trailer #1 - Brendan Fraser MovieThe Mystery Of The Great Pyramid | Graham HancockAncient Apocalypse | Official Trailer | NetflixAncient Aliens_ Great Pyramid's Shocking Precision (Season 12)  HistoryEgyptian Pyramid Building Technique Reveal By Wally WallingtonWally Wallington lifts 20 Ton Block By Hand?Ancient Aliens_ Egyptian Mysteries Hide Proof of UFOsOld Paintings with UFOsAncient Aliens_ Hidden Chamber Discovered in Great PyramidTESLA KNEW The Secret of the Great Pyramid: Unlimited EnergyMoving Large Pyramid Blocks: Testing the Wet Sand TheoryThe Casing Stones & Pyramidion of The Great PyramidWERE THE GIANTS IN EGYPT THE BUILDERS OF THE PYRAMIDS?The Science of Ancient Acoustic Levitation | How The Pyramids Were Built?Ancient Aliens_ The Great Pyramids Are Power PlantsUM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
More Episodes
Hver kannast ekki við að hafa heyrt eða lesið sögur um stórfót hinn ógurlega, eða sambærilega veru? Einhverskonar risavaxinn og kafloðinn mannapa sem gengur uppréttur og virðist ráfa um mannheima hrellandi fólk og ýmsan búfénað á afskekktum svæðum? Til eru mýmargar sögur víðvsvegar um heiminn af...
Published 05/03/24
Sean Love Combs, betur þekktur sem Puff Daddy eða P. Diddy hefur verið ein skærasta stjarna tónlistar og menningargeirans vestanhafs undanfarna áratugi. Hann hefur unnið með fjöldanum öllum af stórstjörnum eftir að hafa stigið fram á sjónarsviðið á 10.áratugu síðustu aldar.  Undanfarnar vikur og...
Published 04/19/24
Published 04/19/24