P1: Pýramídarnir í Egyptalandi voru ekki byggðir eins og okkur er kennt í sögubókum | Hluti 1
Listen now
Description
Pýramídarnir í Egyptalandi eru að flestra mati eitthvert merkasta byggingar og verkfræði -afrek mannkynssögunnar og eru þeir eina af upphaflegu sjö undrum veraldar sem enn standa í dag. Pýramídarnir í Egyptalandi eru fjölmargir og vissulega mis merkilegir og áhugaverðir en þekktastir og langumtalaðastir eru pýramídarnir 3 í Gísa. Þar sem Pýramídinn mikli í Gísa er langvinsælastur og mikilfenglegastur. En hvernig má það vera að Egyptar hafi búið yfir svona gífurlega mikilli verkkunnáttu og skipulagi fyrir svo óralöngu síðan? Hvernig náðu Egyptar að gera Pýramídana svona nákvæmnlega hornrétta og fullkomna? Má það virkilega vera að Egyptar hafi byggt hinn mikla Pýramída í Gísa á einungis 20 árum? Þrátt fyrir að í Pýramídanum mikla séu uþb 2-3 miljónir steina sem eru á bilinu 2-80 tonn hver? Ef það er satt þá hefðu Egyptar þurft að hlaða á bilinu einn stein á  fimm mínútna fresti allan daginn, alla daga í 20 ár samfleytt án þess að stoppa nokkurn tíma. Þá hafa ýmsir bent á að Egyptar hefðu einnig þurft að ferja þessa þungu steina rúmlega 800km leið að byggingarsvæðinu sem má ætla að sé heljarinnar verk og krefist bæði gífurlegs mannafls og enn frekari verkfræði kunnáttu. Aðrir hafa einnig bent á að varla séu til nægilega sterkir byggingarkranar í dag til þess að lyfta svo þungum steinum og jafnvel ef þeir kranar væru til þá væru ef til vill ekki til neinir vírar eða kaplar sem réðu við þungann. Hvernig má þá vera að slík tækni og kunnátta hafi verið til fyrir mörg ár þúsundum síðan? Getur mögulega verið að sögubækurnar séu einfaldlega að ljúga að okkur?  Og er þá vísvitandi verið að ljúga að okkur í einhverjum annarlegum tilgangi eða hafa sagnfræðingar og fornleifafræðingar einfaldlega rangt fyrir sér af því að þau vita ekki betur? Þetta og svo margt, margt fleira í þessum fyrri þætti af tveimur þar sem vinirnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort að sögubækurnar séu mögulega að ljúga að okkur um pýramídana í Egyptalandi.  Málsmetandi aðili þáttarins er Ólafur Jóhann Sigurðsson séntilmaður, lífskúnstner og „næstum því fornleifafræðingur“.  HLEKKIR Á ÍTAREFNI Stargate (1994) Official Trailer HQEgypt Pyramid mathAll 3 Giza Pyramids Correspond Directly to 432The Great Pyramid uses simple 11:14 right-angled triangle geometryUnlocking the Secrets of Egypt's Pyramids Building The Great Pyramid of GizaHow did they build the Great Pyramid of Giza?GIZA - The Holy Grail of GeometryGREAT PYRAMID & SACRED GEOMETRYUM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
More Episodes
Getur í raun verið að jörðin sé ekki hnöttur og að geimvísindastofnanir Bandaríkjanna og Evrópu og vísindasamfélagið í heild sinni sé vísvitandi að blekkja okkur? Hvað ef að geimurinn er hreinlega ekki til og þetta er allt saman eitt stórt sjónarspil og svikamylla fégráðugra einstaklinga?Ef...
Published 05/31/24
Published 05/31/24
Seðlabanki Bandaríkja Norður-Ameríku (e. federal reserve) hefur löngum verið umdeild stofnun sem mikið hefur verið karpað um. Sú staðreynd að bankinn sé í einkaeigu fremur en ríkiseigu þykir afar sérstakt og hefur margur álhatturinn bent á að slíkt hljóti að teljast í hæsta máta...
Published 05/17/24